alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

28. janúar 2010
Ísland efst á umhverfislista

Notkun endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi vekur ávallt mikla athygli erlendis. Á nýjum lista yfir umhverfisvænustu lönd heimsins, trónir Ísland nú í efsta sæti með 93,5 stig af hundrað mögulegum.

Listinn er settur saman af sérfræðingum í Yale og Columbia háskólunum í Bandaríkjunum og var birtur á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss sem nú stendur yfir. Hin Norðurlöndin eru einnig ofarlega á listanum en Bandaríkin eru í 61 sæti og Kína í því 121.

Daniel C. Esty, yfirmaður umhverfisstofnunar Yale háskólans, sem hafði yfirumsjón með gerð listans segir í New York Times í gær að það sem einkenni þau lönd sem eru ofarlega á listanum sé að þar séu umhverfismál tekin alvarlega í stefnumótun og staðan í umhverfismálunum fari ekki versnandi. Meginástæðan fyrir því hversu hátt Ísland er á listanum er nýting á vatns- og gufuafli til orkuframleiðslu. Aðrir þættir sem teknir eru inn í matið eru m.a. ástand umhverfisins, verndun búsvæða og samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda, loftmengunar og úrgangs.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina