alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

12. janúar 2010
Tap á síðasta ársfjórðungi

Alcoa kynnti í gær afkomu fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi 2009. Tekjur fjórðungsins námu 5,4 milljörðum bandaríkjadala, eða um 672 milljörðum íslenskra króna miðað við núverandi gengi, og jukust um 18% frá þriðja ársfjórðungi.

Tap á fjórðungnum var 277 milljónir bandaríkjadala sem svarar til rúmlega 34 milljarða króna. Frjálst sjóðsstreymi nam 761 milljónum dala, eða um 95 milljörðum íslenskra króna, og var jákvætt í fyrsta sinn frá því á öðrum fjórðungi ársins 2008. Sjóðsstreymi frá rekstri var 1,1 milljarður bandaríkjadala á fjórðungnum, eða um 137 milljarðar íslenskra króna, og jókst um 940 milljón bandaríkjadali frá þriðja ársfjórðungi.
 
Fram kemur í tilkynningu að mjög vel hefur gengið að aðlaga starfsemi fyrirtækisins breyttum aðstæðum í efnahagslífi heimsins og með markvissum aðgerðum hefur tekist að styrkja stöðu fyrirtækisins á árinu.
 
Sé litið til ársins 2009 í heild námu tekjur Alcoa 18,4 milljörðum bandaríkjadala, sem svarar til um 2.289 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar voru tekjur Alcoa 26,9 milljarðar bandaríkjadalir árið 2008, eða um 3.346 milljarðar íslenskra króna. Heildartap ársins 2009 var 1,15 milljarður bandaríkjadala, eða um 143 milljarðar íslenskra króna, samanborið við 74 milljónir bandaríkjadala, eða um 9,2 milljarða króna árið 2008.  Sjá fréttatilkynningu Alcoa á ensku.
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina