

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
14. apríl 2009
Sjálfbærniskýrsla Alcoa 2008 lýsir í smáatriðum skuldbindingu við samfélög, viðskiptavini og hluthafa
NEW YORK--(BUSINESS WIRE)--Í dag tilkynnti Alcoa (NYSE:AA) um útgáfu Sjálfbærnisskýrslu fyrirtækisins 2008, árlega greinargerð um frammistöðu fyrirtækisins á hnattrænu umhverfis-, félags- og efnahagssviði. Skýrslan er fáanleg á netinu í sjálfbærnihluta vefseturs Alcoa á www.alcoa.com/sustainability
„Hjá Alcoa er löng hefð fyrir því að bæði setja mikilvæg fyrirtækismarkmið á sviðum fjárhagslegrar velgengni, umhverfislegrar ráðmennsku og félagslegrar ábyrgðar og tilkynna öllum hagsmunaaðilum okkar um framvindu okkar að þeim markmiðum. Við væntum þess einnig að þessi markmið séu lesin með hliðsjón af öllum okkar gildum,“ sagði William J. O'Rourke, varaforstjóri sjálfbærni og umhverfis, heilsu og öryggis hjá Alcoa. „Sjálfbærniskýrsla okkar fyrir 2008 leggur áherslu á þær þýðingarmiklu framfarir sem við höfum áorkað og markmiðin sem við munum halda áfram að sækjast eftir á þessum efnahagslega erfiðu tímum og í framtíðinni.“ Nokkur eftirtektarverð afrek ársins 2008 fela í sér:
- 75.9% af vinnustöðum Alcoa voru með núll tapaða vinnudaga og 44,4% þeirra höfðu engin skráanleg meiðsli;
- Fyrirtækið náði 36% samdrætti gróðurhúsalofttegunda frá grunnárinu 1990—44% bætingu umfram 25% samdráttinn sem stefnt var að fyrir árið 2010.
- Um þar bil 90% af starfsstöðvum Alcoa á heimsvísu eru með samfélagsverkefni, sem setur fyrirtækið í seilingarfjarlægð frá markmiði sínu sem var 100% árið 2010; og
- Alcoa var talið með í sjálfbærnivísitölu Dow Jones sjöunda árið í röð og útnefnt eitt af sjálfbærustu fyrirtækjum í heiminum á ráðstefnu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar í Davos fimmta árið í röð.
Sjálfbærniskýrsla Alcoa inniheldur einnig sjálfstæða athugasemd frá AccountAbility, hnattrænum félagsskap sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni og sem helgar sig hugsunarforystu og ráðgjafarþjónustu sem beinist að sjálfbærri þróun. Alcoa hefur unnið með AccountAbility síðustu tvö árin til að bæta gegnsæi og gæði sjálfbærnitilkynninga sinna. Alcoa veitti AccountAbility rými til að tjá sig um sjálfbærnitilkynningar fyrirtækisins og til að bjóða ráðgjöf um hvernig Alcoa getur haldið áfram að bæta tilkynningar sínar. Um Alcoa Á heimsvísu er Alcoa leiðandi framleiðandi og stjórnandi á sviði hrááls, unnins áls og súráls gegnum virka og vaxandi stöðu sína á öllum helstu sviðum atvinnugreinarinnar. Alcoa þjónustar markaði á sviði geimferða, bifreiða, umbúða, bygginga- og mannvirkjagerðar, flutningaviðskipta og iðnaðar og færir viðskiptavinum sínum hönnun, verkfræði, framleiðslu og annað það sem fyrirtækið er fært um. Til viðbótar við framleiðsluvörur og íhluti úr áli, þar með talið flatvalsaðar framleiðsluvörur, harðpressun málmblendis og steypur, markaðssetur Alcoa einnig Alcoa® felgur, festingakerfi, nákvæmnisafsteypur og afsteypur með „lost wax“ aðferðinni og byggingarkerfi. Fyrirtækið hefur verið útnefnt eitt af sjálfbærustu fyrirtækjum heims á ráðstefnu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar í Davos í Sviss og hefur verið meðlimur í sjálfbærnivísitölu Dow Jones sjö ár í röð. Frekari upplýsingar má finna á www.alcoa.com
|
 |
|