Áfram


Prentvæn útgáfa
go

21. desember 2009
Samfélagssjóður Alcoa styrkir Hjálparstarf kirkjunnar

Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum hefur ákveðið að styrkja Hjálparstarf kirkjunnar um 75.000 Bandaríkjadali, eða um 9,6 milljónir króna.  Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri upplýsinga- og samfélagsmála  hjá Alcoa á Íslandi, afhenti Hjálparstarfinu styrkinn í dag, mánudaginn 21. desember.  Þetta er í annað sinn sem Samfélagssjóðurinn styrkir Hjálparstarfið, en fyrir ári veitti sjóðurinn Hjálparstarfinu 50 þúsund dollara styrk, eða sem svarar til rúmlega 6 milljóna króna.

Styrkur Samfélagssjóðs Alcoa er ætlaður til aðstoðar innanlands þar sem þörf fyrir aðstoð hefur þrefaldast frá síðasta ári. Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, segir að um 3500 einstaklingar og fjölskyldur af landinu öllu hafi fengið aðstoð Hjálparstarfsins á árinu, „og margir þeirra oftar en einu sinni. Styrkur Samfélagssjóðs Alcoa kemur því að virkilega góðum notum og munu prestar landsins ráðstafa honum til þurfandi bæði nú fyrir jólin og á nýju ári. Hjálparstarf kirkjunnar þakkar Samfélagssjóði Alcoa fyrir þetta rausnarlega framlag."
 
„Það er sérstaklega ánægjulegt að veita Hjálparstarfi kirkjunnar þennan styrk,  enda er þörfin mikil núna þegar um 12 þúsund manns í landinu eru atvinnulausir.  Það er gert ráð fyrir því að þessi styrkur verði einnig notaður til að aðstoða fjölskyldur á landsbyggðinni, sérstaklega á Austurlandi. Hjálparstarfið hefur unnið afar mikilvægt starf á undanförnum árum við  að aðstoða fólk bæði innanlands og utan og hér innanlands hefur þörfin fyrir aðstoð aukist verulega vegna kreppunnar,“ sagði Erna Indriðadóttir þegar styrkurinn var afhentur
 
Á síðasta ári veitti Samfélagssjóður Alcoa styrki  til verkefna í mörgum löndum, sem námu samtals 50,6 milljónum Bandaríkjadala, um sex og hálfum milljarði íslenskra króna. Þá lögðu starfsmenn Alcoa um allan heim hönd á plóg fyrir sitt samfélag og gáfu samtals yfir 705.000 vinnustundir af frítíma sínum í sjálfboðavinnu, eða sem svarar  ársverkum 350 manna.
 
Samfélagssjóður Alcoa var stofnaður fyrir 56 ára árum og hefur frá upphafi veitt um 500 milljónir Bandaríkjadala (64 milljarð króna) til samfélagslegra verkefna um allan heim, þar sem fyrirtækið er með starfsstöðvar.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Styrkur til hjálparstarfs afhentur


Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, og Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri upplýsinga- og samfélagsmála  hjá Alcoa á Íslandi, takast í hendur eftir afhendingu styrksins.