alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

6. nóvember 2009
Alcoa gengur til liðs við Karl Bretaprins í baráttu hans fyrir verndun regnskóganna

Alcoa Corporation,  móðurfélag Alcoa Fjarðaáls, tilkynnti í New York 5. nóvember sl. að fyrirtækið ætlaði að taka þátt í umhverfisverndarverkefninu The Prince’s Rainforests Project (PRP), sem Karl Bretaprins af Wales stofnaði fyrir tveimur árum. Markmið PRP er að berjast gegn eyðingu regnskóganna og um leið þeim breytingum sem orðið hafa í lofthjúpi jarðarinnar. 

Alcoa verður, ásamt fleiri fyrirtækjum og félagasamtökum, formlegur aðili að PRP á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem haldin verður í Kaupmannahöfn í byrjun desember.
 
Þátttaka Alcoa í verkefninu er í samræmi við umhverfisstefnu fyrirtækisins, enda telur Alcoa afar mikilvægt að stuðla að meiri og almennari skilningi á mikilvægi regnskóganna fyrir allt lífríki jarðar vegna þeirra áhrifa sem skógarnir hafa á úrkomu, fjölbreytni dýrategunda og bindingu kolefnis í andrúmsloftinu.
 


Karl Bretaprins til verndar regnskógunum


Sumum kann að virðast einkennilegt að Alcoa hafi verið boðið að ganga í lið með Karli Bretaprins til verndar regnskógunum í Amazon en það er engin tilviljun, þar sem Alcoa hefur lagt áherslu á Amazon-svæðið, til nýtingar og verndar. Smelltu á slóðina hér fyrir neðan til að sjá myndskeið um verkefnið.
skoða myndband


Sendu SMS


Sendu heiminum skilaboð um að draga úr eyðingu regnskóganna.
sjá nánar

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina