alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

13. nóvember 2009
Alcoa í hópi sjálfbærustu fyrirtækja Brasilíu

Exame er virtasta viðskiptatímaritið í Brasilíu. Það heiðrar árlega leiðandi fyrirtæki fyrir frumkvæði á sviði sjálfbærni í rekstri og útnefndi nýlega Alcoa sem eitt af fremstu fyrirtækjum landsins á því sviði í árlegu yfirliti sem tímaritið gefur út.

Á listanum í ár (Sustainability Guide 2009), sem birtur var við hátíðlega athöfn í Sao Paulo 11. þessa mánaðar, eru tuttugu fyrirtæki skilgreind sem „fyrirmyndarfyrirtæki“ á sviði sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar.
 
„Það er okkur mikill heiður að hafa verið valin í þennan sérstaka flokk fyrirtækja, einkum vegna þess að við höfum verið að færa út kvíarnar í Brasilíu á undanförnum árum. Í þessu felst mikilvæg viðurkenning fyrir þá viðleitni Alcoa að styrkja grundvallarstoðir sjálfbærs samfélags, þar á meðal á sviði umhverfis- og efnahagsmála,“ sagði Franklin L. Feder, forstjóri Alcoa í Suður-Ameríku.
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina