alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

18. nóvember 2009
Álið frá Alcoa notað í nýju Ares eldflaug NASA

Tímaritið Time segir að Ares eldflaugin sé „besta, tæknilega fullkomnasta og glæsilegasta nýsmíði ársins 2009 – eldflaug sem muni skjóta mönnuðum flugförum til nýrra áfangastaða í himingeimnum.“ Burðarvirki flaugarinnar er að miklu leyti gert úr háþróaðri og léttri en afar sterkri málmblöndu úr áli og liþíum sem þróuð var hjá nýsköpunarmiðstöð Alcoa í Pittsburgh í Bandaríkjunum.

Málmblandan verður þróuð áfram hjá Alcoa til að styðja við frekari tækniuppfinningar á borð við Ares verkefnið og einnig önnur nýsköpunarverkefni. Er markmiðið m.a. að þróa fullkomna aðferð til vinna ál-liþíum stangir í málmplötur sem hafa einstakan styrkleika.

Vottaður samstarfsaðili
Ál-liþíum stangirnar eru steyptar í nýsköpunarmiðstöðinni í Pittsburgh og sendar þaðan til plötuverksmiðju Alcoa í Iowa, sem er eina verksmiðjan í heiminum sem NASA hefur vottað sem samstarfsaðila við þróun á hástyrkleikamálmplötum til nota við smíði á farartæki áhafnar nýju geimflaugarinnar.
 
Uppfylla þarfir NASA
Árið 2007 gerði NASA samning við Alcoa um að þróa aðferð til framleiðslu á vörum úr hástyrkleika ál-liþíum málmblöndum fyrir NASA. Ári síðar vottaði NASA Alcoa sem eina framleiðandann á þessu sviði fyrir geimvísindastofnunina. Nú hafa nýsköpunarmiðstöð Alcoa í Pittsburgh og plötuverksmiðja Alcoa í Iowa þróað sameiginlega aðferðir sem fullnægja bæði nægilegri framleiðslugetu og góðum sveiganleika í framleiðslunni sem henta þörfum NASA við Ares verkefnið.
 
Framleiðsluvörur Alcoa hafa verið notaðar frá upphafi nýju geimferðaáætlunar NASA, en auk þess er Alcoa þátttakandi í þróun á vöruflutningaeldflauginni Ares V, sem einnig er á teikniborðinu.
 
Leiðandi á heimsvísu
Alcoa er leiðandi aðili á heimsvísu í þróun á léttri ál-liþíum málmblöndu, sem hefur lítinn eðlismassa og mikinn styrkleika. Hlaut fyrirtækið m.a. hin svokölluðu R&D 100 verðlaun árið 2007 fyrir þróun á þess konar málmblöndu fyrir flugvélaiðnaðinn. Alcoa hefur hlotið meira en tíu slíkar viðurkenningar á umliðnum árum. Málmblandan var sett á markað árið 2006 og hefur hjálpað flugvélaiðnaðinum að mæta sífellt harðnandi kröfum um minni þyngd, aukna sjálfbærni og lægri rekstrarkostnað.
 
Nánari upplýsingar
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina