alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

3. nóvember 2009
Alcoa tekur þátt í hönnun og smíði farþegaþotu í Kína

Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC hefur ákveðið að framleiða nýja farþegaþotu, C919, sem á að geta flutt 190 farþega. Þotan á að hefja sig fyrst til flugs 2014 en farþegaflug hefst 2016. 

Alcoa og COMAC kynntu nýverið samkomulag um að vinna að tækniþróun og hönnun C919. Fyrirtækin munu vinna saman að gerð burðarvirkis, ytri álklæðningar og notkun ýmissa álhluta við smíði farþegaþotunnar.
 
Þotan C919 verður smíðuð í Shanghæ en hlutir í hana verða bæði framleiddir í Kína og víða um heim.  Þotan verður stærsta farþegaþotan sem framleidd hefur verið í Kína en mikill vöxtur hefur verið í farþegaflugi bæði þar innanlands og Asíu almennt.  Eftirlíking af þotunni var frumsýnd á alþjóðlegu flugvélasýningunni í Hong Kong nýverið.
 
Alcoa er með starfsemi á 15 stöðum í Kína og hefur framleitt ýmsa flugvélahluti í kínverskar farþegaþotur eins og ARJ21-700.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Glæsileg farþegaþota


Líkan af nýju þotunni sem nýlega var til sýnis á Asian Aerospace-sýningunni í Hong Kong .

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina