alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

26. október 2009
Íbúafundur í álveri Fjarðaáls

 Rúmlega 50 manns mættu til opins kynningarfundar sem haldinn var í mötuneyti Fjarðaáls laugardaginn 24. október síðastliðinn, en það er stefna fyrirtækisins að bjóða íbúum í Fjarðabyggð og nágrannasveitarfélögum til fundar einu sinni á ári, til að greina þeim frá því sem er efst á baugi í fyrirtækinu og gefa þeim tækifæri á að spyrja nánar út í starfsemina.  

 Á fundinum var meðal annars farið yfir mælingar á útblæstri frá álverinu og fram kom að mengungarefni í honum eru undir þeim mörkum sem kveðið er á um í starfsleyfi fyrirtækisins. 
Stöðug umhverfisvöktun fer fram í nágrenni álversins og hefur verkfræðistofan HRV umsjón með henni. Náttúrufræðistofa Austurlands annast sýnatöku og fyrirtækið Sýni sér um að grein sýnin. Meðal annars er fylgst með loftgæðum og magni brennisteinstvíoxíðs í andrúmsloftinu, flúors og svifryks. Yfirboðsvatn er skoðað og fylgst með efnasamsetningu þess og það sama á við um úrkomuvatn. Magn flúors í mosa, fléttum og bláberjalaufum er mælt einu sinni á ári og einnig styrkur flúoríðs og brennisteins í grasi, heyi, rabarbara og kartöflum, svo eitthvað sé nefnt.
 
Gangsetningu álversins lauk ekki fyrr en á síðasta ári og Guðmundur Sveinsson Kröyer sérfræðingur í umhverfismálum segir niðurstöður mælinga á þessu ári endirspegla umhverfisáhrif álvers í venjulegum rekstri. 
 
Guðmundur greindi jafnframt frá því á fundinum að Skipulagsstofnun teldi ekki þörf á nýju umhverfismati fyrir Fjarðaál, þótt ársframleiðsla álversins yrði aukin upp í 360.000 tonn. Hann sagði að áhrif framleiðsluaukningarinnar á umhverfið yrðu óveruleg.
 
Auk umhverfismála fjallaði starfsfólk álversins um framlag Fjarðaáls í kreppunni, en áliðnaðurinn hefur ekki farið varhluta af heimskreppunni. Afkoma Alcoa hefur verið mjög erfið á þessu ári, þótt heldur hafi rofað til á þriðja ársfjórðungi. Þótt álverum hafi verið lokað annars staðar í heiminum vegna kreppunnar, hefur framleiðslu verið haldið áfram í álverinu á Reyðarfirði og ál var á síðasta ári tæp 28% af útflutningi vöru og þjónustu frá Íslandi, en sjávarafurðir rúmlega 26%. 
 
Fram kom að nýjar hugmyndir um auðlinda-, orku- og umhverfisskatta eins og þeim er lýst í fjárlagafrumvarpinu, myndu þýða margra milljarða króna viðbótarkostnað fyrir Fjarðaál. Það myndi þýða að draga þyrfti enn frekar úr kostnaði hjá fyrirtækinu og möguleikar til nýrra fjárfestinga á Reyðarfirði eða annars staðar á landinu minnkuðu.
 
Um 700 manns starfa að staðaldri á álverssvæðinu, 450 starfsmenn Fjarðaáls og 250-300 verktakar. Opinber gjöld vegna þeirra 700 starfa sem eru á álverssvæðinu og af álverinu sjálfu nema tæpum fjórum milljörðum króna á ári. Fyrirtækið keypti vöru og þjónustu innanlands fyrir 9,5 milljarða króna í fyrra. Samfélagsstyrkir frá upphafi starfseminnar nema rúmlega 330 milljónum króna. Þá hefur Alcoa lagt um einn milljarð króna í rannsóknarboranir og djúpboranir í Norður-Þingeyjarsýslum.
 
Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri heilsu og öryggis hjá Fjarðaáli fór yfir öryggismál og greindi meðal annars frá því að heilsu og öryggisteymi fyrirtækisins byggi yfir sérfræðiþekkingu sem gæti nýst út í samfélaginu, til dæmis með því að starfsmenn fyrirtækisins myndu miðla henni til íbúa og jafnvel grunnskólanemenda. 
 
Að loknum kynningarfyrirlestrum og umræðum var fundargestum boðið upp á leiðsögn um álverslóðina.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Frá íbúafundinum


  Gestir á íbúafundi fylgjast með kynningu Ernu Indriðadóttur í mötuneyti Fjarðaáls.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina