alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

19. október 2009
Betri afkoma þrátt fyrir tap á árinu

Eftir mikið tap hjá Alcoa fyrstu sex mánuði ársins, urðu umskipti til hins betra í rekstri fyrirtækisins á  þriðja ársfjórðungi. Þrátt fyrir það er mikið tap af rekstrinum það sem af er árinu.

Hagnaður á rekstri Alcoa á þriðja ársfjórðungi þessa árs nam 77 milljónum Bandaríkjadala eða um 9,6 milljörðum króna. Þótt afkoma Alcoa hafi batnað verulega á þriðja fjórðungi ársins hefur rekstur fyrirtækisins verið erfiður á árinu, vegna efnahagskreppunnar sem nú ríkir í heiminum. Töluvert tap var á rekstrinum fyrri hluta ársins og þrátt fyrir hagnað á þriðja ársfjórðungi  nemur tap Alcoa fyrstu níu mánuði ársins rúmlega 109 milljörðum íslenskra króna  en á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn rúmlega 139 milljarðar króna. 
 
Tekjur Alcoa á síðasta ársfjórðungi námu 4,6 milljörðum dala á móti 4,2 milljörðum á öðrum ársfjórðungi, sem samsvarar 9% hækkun tekna. Tekjurnar námu 7 milljörðum á þriðja ársfjórðungi 2008. Tekjuaukningin millli ársfjórðunga nú er að miklu leyti tilkomin vegna hækkun álverðs á heimsmarkaði upp í 1.972 dali á tonnið en á öðrum ársfjórðungi var meðalverðið 1.667 dalir.
 
„Þær ráðstafanir sem við gripum til á fyrri helmingi ársins skila sér nú í sterkari lausafjárstöðu og meiri hagnaði,” segir Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa. „Þrátt fyrir óhagstætt gengi Bandaríkjadals og hækkun raforkuverðs, sýnir frammistaða okkar á þessum ársfjórðungi að Alcoa er að standa af sér storminn í efnahagslífinu og er í góðri stöðu til að hagnast þegar markaðurinn er búinn að ná sér á strik.”
 
Fyrirtækið hefur farið fram út öllum væntingum hvað varðar styrkingu lausafjárstöðu þess, sem kom sér vel til að mæta neikvæðu gengi og hærri raforkukostnaði á þriðja ársfjórðungi. Sparnaður í stjórnunarkostnaði nam 375 milljónum dala, en það samsvarar 188% af þeim markmiðum sem sett voru fyrir allt árið 2009. Sparnaður í innkaupum nemur 1,6 milljörðum dala, sem er 107% af markmiðinu sem þar var sett fyrir allt árið 2009.
 
Nú á haustmánuðum er útlit fyrir að nokkur stöðugleiki sé að nást í markaðsumhverfi Alcoa. Vegna minni vörubirgða hjá dreifingaraðilum og meiri flutningum er afkoma víða betri en vænst var og gert er ráð fyrir því að álnotkun aukist um 11% á seinni helmingi ársins 2009.
 

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina