

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
4. september 2009
Yfirmaður álframleiðslusviðs í N-Ameríku og á Íslandi
Jean-Pierre Gilardeau, sem hafði yfirumsjón með gangsetningu Fjarðaáls, hefur tekið við nýrri stöðu yfirmanns álframleiðslusviðs Alcoa í N-Ameríku og Íslandi. Hann stýrði áður álframleiðslu fyrirtækisins í Kanada og á Íslandi.
Alcoa hefur greint frá skipulagsbreytingum á yfirstjórn álframleiðslusviðs fyrirtækisins. Markmið breytinganna er að halda við og hraða jákváðum breytingum á rekstri og grípa þau tækifæri sem efnahagsbati í heiminum mun skapa. John Thuestad, fyrrum forstjóri Elkem AS í Noregi, hefur tekið við nýrri stöðu yfirmanns álframleiðslusviðs fyrirtækisins á heimsvísu. Hann hefur stýrt álframleiðslu fyrirtækisins í Bandaríkjunum frá því í fyrra. Jean-Pierre Gilardeau hefur einnig tekið við nýrri stöðu yfirmanns álframleiðslusviðs Alcoa í N-Ameríku og Íslandi. Hann hefur stýrt álframleiðslu fyrirtækisins í Kanada og á Íslandi frá árinu 2007 og hafði þá m.a. yfirumsjón með gangsetningu Fjarðaáls. Þar áður stýrði hann álframleiðslu Alcoa í Kanada. Jean Pierre er verkfræðingur frá Ecole Polytechnique de Montreal.
|
 |
|