


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
13. ágúst 2009
Fjölbreyttar bæjar- og menningarhátíðir á Austurlandi
Alcoa Fjarðaál hefur styrkt fjölbreytta dagskrá bæjar- og menningarhátíða á Austurlandi í sumar: Franska daga, Ormsteiti, Neistaflug, Jazzhátíð, Hammondhátíð og Listahátíð unga fólksins.
Fjölbreyttar bæjar- og menningarhátíðir hafa lífgað upp á tilveruna á Austurlandi í allt sumar. Takturinn var sleginn með Hammond-hátíðinni á Djúpavogi 23.-25. apríl. Þá tóku jazzgeggjarar við kjuðunum á Jazzhátíð Egilstaða 24. – 28. júní. Helgina 24.-26. júlí héldu Fáskrúðsfirðingar Franska daga og fögnuðu frönskum menningararfi bæjarins. Neistaflug fór fram um verslunarmannahelgina með glæsibrag að vanda. Loks má nefna Listahátíð unga fólksins á Seyðisfirði, eða LUNGA, sem staðið hefur í allt sumar. Framundan er svo hin árlega 10 daga veisla Ormsteitis á Fljótsdalshéraði, með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna dagana 14.-23. ágúst. Eitt af markmiðum Alcoa Fjarðaáls er að vera virkur þátttakandi í austfirsku samfélagi. Fyrirtækið er stolt af því að hafa lagt sinn skerf til þess að frumkvæði og metnaður skipuleggjenda þessara hátíða hafi fengið að njóta sín í frábærum hátíðum í sumar.
|
 |


|