

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
24. ágúst 2009
Bilun í löndunarbúnaði olli súrálsfjúki
Bilun varð í löndunarbúnaði þegar verið var að landa súráli frá flutningaskipi í höfninni á Mjóeyri, síðastliðinn laugardag, 22. ágúst.
Bilunin leiddi til þess að súrál féll niður á súrálsgeymi á lóð álversins. Nokkurrar rykmengunar varð vart í næsta nágrenni tanksins vegna óhappsins en hreinsunarstarf gekk mjög vel og lauk á laugardagskvöldið. Súrál er aðalhráefni álframleiðslu og unnið úr báxíti. Það er hvítt, fínt duft, ekki ósvipað borðsalti að sjá. Súrál er ekki spilliefni og því var ekki hætta á umhverfisspjöllum vegna bilunarinnar. Unnið er að því að tryggja að slíkt óhapp endurtaki sig ekki.
|
 |
|