


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
2. júlí 2009
Meðallaun á landsbyggðinni hæst á Austurlandi
Íbúum í Fjarðabyggð hefur fjölgað um 19% frá árinu 2002 til 2008. Meðallaun á landsbyggðinni hafa frá þessum tíma verið hæst á Austurlandi. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Fjarðaálsfrétta.
Íbúum í Fjarðabyggð fjölgaði um 19% frá árinu 2002, áður en álversframkvæmdir hófust í Reyðarfirði, þar til 1. desember síðast liðinn. Á svæðinu sem nú er Fjarðabyggð bjuggu 3.995 manns árið 2002, en 4.736 sex árum síðar, eða í desember á síðastliðnu ári. Þá hafa meðallaun á landsbyggðinni á sama tímabili verið hæst á Austurlandi. Alcoa Fjarðaál flutti út ál fyrir um 800 milljónir dollara árið 2008 sem svarar til um 70 milljarða króna miðað við meðalgengi dollars á síðasta ári. Ætla má að yfir þriðjungur útflutningstekna fyrirtækisins verði eftir í landinu. Tæp 40% allra vöruflutninga frá landinu eru ál. Um 700 manns vinna að staðaldri á álverslóðinni, ýmist hjá Fjarðaáli eða verktökum sem starfa fyrir fyrirtækið. Tekjur sveitarfélaga á Austurlandi, af gjöldum sem álverið greiðir til Fjarðabyggðar og útsvari starfsmanna álversins og starfsmanna verktakanna, voru um 800 milljónir króna í fyrra. Útsvarstekjur dreifast milli Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs, þar sem nálægt 70% starfsmanna álversins búa í Fjarðabyggð en um 30% á Fljótsdalshéraði. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands mat það svo að landsframleiðsla ykist um 1,2% með tilkomu álvers Alcoa Fjarðaáls. Fjarðaál og samfélagssjóður Alcoa hafa veitt rúmlega 330 milljónir króna í samfélagsstyrki á Íslandi frá árinu 2003 til 2008.
|
 |


|