alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

1. júlí 2009
Norðursprotar verða til á Norðausturlandi

Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum, Alcoa Foundation, veitti í dag Háskólanum á Akureyri 52.500 dollara styrk til að hrinda úr vör nýsköpunarverkefni sem hefur hlotið heitið Norðursprotar. Alcoa á Íslandi, Háskólinn á Akureyri og Impra á Nýsköpunarmiðstöð efndu síðla vetrar til samstarfs um þetta verkefni, sem er ætlað að styðja nýsköpunarhugmyndir einstaklinga í atvinnuleit á Norðausturlandi og geta leitt til frekari atvinnutækifæra í landshlutanum.

Styrkur samfélagssjóðsins svarar til rúmlega 6,7 milljóna króna miðað við gengi dagsins í dag. Verkefnið Norðursprotar snýr að gerð viðskiptaáætlana og verður styrkurinn frá Samfélagssjóði Alcoa notaður til að standa undir kostnaði við gerð þeirra. Á þessu ári einbeitir sjóðurinn sér að verkefnum á Íslandi sem ýmist auðvelda einstaklingum lífið í kreppunni eða hvetja fólk til þátttöku í uppbyggjandi starfi og samveru. Sjóðurinn veitti Hjálparstarfi kirkjunnar styrk í upphafi þessa árs, en hann rann  til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna atvinnumissis og kreppu.
 
Að þessu sinni var ákveðið að styðja nýsköpun sem kann að leiða til fjölgunar starfa. Samstarfið felur í sér að verkefnastjórar Impru á Nýsköpunarmiðstöð veita einstaklingunum ráðgjöf við framsetningu og ritun viðskiptaáætlana sinna og kennarar við viðskipta- og raunvísindadeild HA leggja einnig sitt af mörkum eftir því sem þörf krefur. Þá verður matsnefnd sem útdeilir styrknum skipuð fólki frá Háskólanum á Akureyri, Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Alcoa Fjarðaáli.
 
Uppbyggjandi verkefni
Það var Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi sem afhenti Þorsteini Gunnarssyni, rektor Háskólans á Akureyri, styrk Samfélagssjóðs Alcoa vegna Norðursprota. Var styrkurinn afhentur í húsakynnum rafverktakafyrirtækisins RAF á Akureyri, sem hóf göngu sína sem sprotafyrirtæki og hefur vaxið og dafnað síðan, m.a. undir handleiðslu Impru á Nýsköpunarmiðstöð, og þar starfa nú ellefu manns. Tómas Már sagði við afhendinguna að það væri sérstakt ánægjuefni að sjóðurinn hefði ákveðið að styrkja nýsköpun og uppbyggingu á Norðausturlandi með þessum hætti og sagðist vona að framlagið stuðlaði að frekari uppbyggingu svæðisins. 
 
Þorsteinn Gunnarsson, sem lætur af starfi rektors við Háskólann á Akureyri um mánaðamótin eftir 15 ára farsælan feril, sagði styrkinn koma í mjög góðar þarfir við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu sem hefur orðið fyrir áföllum í kjölfar efnahagshrunsins.
 
Auglýst eftir umsóknum
Impra á Nýsköpunarmiðstöð mun annast framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Háskólann á Akureyri og á næstunni verður auglýst eftir umsóknum frá einstaklingum á Norðausturlandi. Er gert ráð fyrir að unnt verði að styrkja á bilinu 12 til 15 umsækjendur til gerðar viðskiptaáætlunar fyrir nýsköpunarhugmynd þeirra. Styrkirnir nema allt að 400 þús. krónum til hvers og eins sem fær styrk. Ekkert verður því til fyrirstöðu í framhaldinu að unnið verði að framgangi sjálfra viðskiptahugmyndanna í samstarfi við fyrirtæki á Norðausturlandi sem hafa áhuga á að hrinda þeim í framkvæmd í samstarfi við viðkomandi aðila.
 
Þeim sem áhuga hafa á að sækja um styrk til Norðursprota er bent á frekari upplýsingar og umsóknareyðublað á heimasíðu Impru á Nýsköpunarmiðstöð, impra.is. Opið verður fyrir umsóknir til mánudagsins 20. júlí næstkomandi.




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Styrkur afhentur


Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi (t.v.) afhendir Þorsteini Gunnarssyni, fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri, styrkinn frá Samfélagssjóði Alcoa.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina