alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

4. júlí 2009
Kröftug nýsköpun tengist áliðnaði

Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa á Íslandi, segir í  nýútkomnum Fjarðaálsfréttum, að umræðan um íslenskan áliðnað hafi á undanförnum árum oft einkennst af neikvæðni, þrátt fyrir að fyrirtæki eins og Fjarðaál  veiti um 700 manns vinnu, bæði föstum starfsmönnum Fjarðaáls og verktökum, og  ál sé nú, ásamt sjávarfangi, helsta útflutningsgrein Íslendinga og mjög mikilvægt fyrir efnahag landsins.

„Í íslenskum álverum starfar fólk með fjölbreytta menntun og reynslu að framleiðslu áþreifanlegra og verðmætra afurða,“ segir Tómas í leiðara Fjarðaálsfrétta en blaðið kemur út einu sinni á ári og er dreift til allra heimila á Mið-Austurlandi. Hann segir þetta mikilvægt þegar þjóðin glími við alvarlegustu efnahagskreppu í áratugi. 
 
„Kreppan hefur kennt okkur að undirstaða íslensks samfélags er ekki fólgin í fjármálastarfsemi eða starfsemi risavaxinna eignarhaldsfélaga á erlendri  grund. Styrkur Íslands liggur í nýtingu náttúruauðlinda,"  segir Tómas.  Í leiðaranum segir einnig að  álver eins og Fjarðaál sé mikilvægur jarðvegur fyrir fjölbreytta flóru annarra fyrirtækja, meðal annars á sviði verkfræðiþjónustu, flutninga, viðhalds vélsmiðjureksturs og tölvuvinnslu. Þá eigi Fjarðaál viðskipti við um 180 birgja fyrir 9,5 milljarða króna á ári. 
 
Tómas bendir á að í umræðunni hafi áliðnaði verið stillt upp sem andstæðu nýsköpunar í íslensku atvinnulífi.  Staðreyndin sé hins vegar sú að áliðnaðurinn sé ekki andstaða nýsköpunar. Þvert á móti megi rekja kröftuga nýsköpun í orkugeiranum, umhverfismálum, mannvirkjagerð og á fjölmörgum öðrum sviðum beint til uppbyggingar í íslenskum áliðnaði. Tómas er bjartsýnn á  framtíð áliðnaðarins í heiminum enda bendi allar spár til þess að notkun áls muni halda áfram að aukast þegar fram líða stundir. 
 
„Þess vegna höldum við ótrauð áfram undirbúningi þess að reisa álver á Bakka við Húsavík,“ segir hann ennfremur í leiðaranum. Fjölmargt annað efni er að finna í blaðinu og með því að smella hér er hægt að sjá það í heild sinni (PDF skjal sem er 1,5 Mb).



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fjarðaálsfréttir


Fjarðaálsfréttir koma út einu sinni á ári og er dreift til allra heimila á Mið-Austurlandi. Hægt er að skoða blaðið í PDF-formi.
skoða Fjarðaálsfréttir (1,5 Mb)

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina