alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

10. mars 2009
Alcoa eitt af virtustu fyrirtækjum heims samkvæmt tímaritinu Fortune

Alcoa er virtasta fyrirtæki heims í málmiðnaði samkvæmt niðurstöðum árlegrar könnunar tímaritsins Fortune um virtustu fyrirtæki heims. Fortune tímaritið sem kom út í gær, mánudaginn 9. mars, er mikils metið sem áreiðanlegur mælikvarði á orðspor fyrirtækja.

Auk þess að hljóta viðurkenninguna sem virtasta málmfyrirtækið lenti Alcoa líka efst á lista fyrir nýsköpun, samfélagslega ábyrgð, vörugæði og þjónustu í iðnaði almennt.
 
„Að fyrirtækið skuli teljast með besta orðsporið af öllum fyrirtækjum í málmiðnaði í heiminum er viðurkenning fyrir alla starfsmenn Alcoa og staðfesting á því að álið er eitt af mikilvægustu málmum veraldar. Alcoa axlar þá ábyrgð að vera í fararbroddi áliðnaðarins á þessum miklu umbrotatímum,“ segir Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa.
 
Alcoa hefur verið á lista yfir virtustu fyrirtæki heims í 26 ár samfleytt.
 

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina