Áður tilkynntar aðgerðir varðandi rekstur fyrirtækisins 2009-2010 fela m.a. í sér sparnað í innkaupum sem gert er ráð fyrir að skili fyrirtækinu 2 milljörðum USD (224 milljörðum króna) á ári, og hagræðingu varðandi fastakostnað sem skilar væntanlega 400 milljónum USD, eða 4,5 milljörðum króna. Fyrirtækið hyggst selja fjögur dótturfyrirtæki og hefur dregið sig út úr samstarfi um hlutabréfakaup í Rio Tinto. Ætlað er að þær aðgerðir skili rúmum milljarði Bandaríkjadala eða 123 milljörðum króna í lausafé. Dregið verður úr fjárfestingum um 50% sem þýðir að 95 milljörðum verði varið í þær á ári.
Arðgreiðslur til hluthafa fyrirtækisins verða lækkaðar og munu í ár nema 3,36 krónum á hlut í stað 19 króna í fyrra. Farin var sú leið að lækka greiðslurnar í stað þess að fella þær niður til þess að fylgja áfram þeirri stefnu sem fyrirtækið hefur gert í 60 ár samfleytt, að greiða hluthöfum arð ársfjórðungslega.
Þá stendur til að bjóða á almennum hlutabréfamarkaði hlutabréf og breytanlega viðskiptavíxla upp á rúman milljarð Bandaríkjadala, eða um 112 milljarða íslenskra króna. Tekjurnar af þessari sölu verða notaðar til að greiða skuldir og auka greiðsluhæfi fyrirtækisins sem er nauðsynlegt á þessum umbrotatímum.
Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa segir: „Með snöggum og afgerandi aðgerðum hefur Alcoa tekist að mæta efnahagskreppunni. Aðgerðirnar sem við kynnum núna eiga að hjálpa Alcoa að komast í gegnum áframhaldandi samdrátt og styrkja stöðu fyrirtækisins til frambúðar. Við trúum því að nú séu í hendi verklagsreglur sem gera Alcoa kleift að koma enn sterkara út þegar efnahagslífið hefur náð jafnvægi á ný.“
Þessar aðgerðir hjálpa fyrirtækinu að ná því marki að ná jafnvægi í fjárstreymi á þessu ári og skila nægilegu lausafé til þess að Alcoa geti staðið við skuldbindingar sínar án þess að auka skuldirnar og ná jákvæðu greiðsluflæði á næsta ári.