alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

27. mars 2009
„Óvenjulegir tímar – óvenjulegar leiðir“

Alcoa hefur gefið út ársskýrslu vegna ársins 2008 og er hún aðgengileg í PDF-formi á vef Alcoa Fjarðaáls.

Í ávarpi sínu til hluthafa lítur Alain Belda yfir farinn veg en árið einkenndist að sjálfsögðu af efnahagskreppunni sem reið yfir síðsumars. Í júlí náði álverð sögulegu hámarki en bæði verðið og eftirspurn eftir áli féllu síðan hraðar en nokkru sinni fyrr það sem eftir var ársins. Með réttum viðbrögðum náði Alcoa að halda forystu sinni á álmarkaði og tryggði m.a. að 80% af álframleiðslu fyrirtækisins kæmi annað hvort frá orkuverum í eigu Alcoa eða félli undir langtíma raforkusamninga a.m.k. til ársins 2028.
 
Belda tekur fram að Alcoa sé ekki sama um sitt fólk og sýni það meðal annars með einhverjum ströngustu öryggiskröfum sem um getur. Alcoa var á árinu valið í eitt af tíu efstu sætunum af 500 alþjóðlegum fyrirtækjum – og í efsta sæti í málmiðnaðinum – fyrir siðferði.
 
Útlit ársskýrslunnar endurspeglar hversu alvarlega Alcoa tekur sparnaðaraðgerðir vegna kreppunnar en hún er einföld, ekki prentuð á glanspappír og  eingöngu fáanleg á Netinu. Smelltu hér til að skoða hana á vef Alcoa Inc.
 


Ársskýrsla Alcoa


Hér má nálgast ársskýrsluna á PDF-formi (2,9 MB)
skoða

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina