

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
24. febrúar 2009
Tæpir sex milljarðar til góðra verkefna frá samfélagssjóði Alcoa árið 2008
Í gær sendi samfélagssjóður Alcoa frá sér fréttatilkynningu um skýrslu sjóðsins vegna ársins 2008. Styrkir úr sjóðnum námu samtals 50,6 milljónum Bandaríkjadala, eða tæpum sex milljörðum íslenskra króna á árinu 2008. Þá lögðu starfsmenn Alcoa um allan heim hönd á plóg fyrir sitt samfélagi og gáfu samtals yfir 705.000 vinnustundir af frítíma sínum í sjálfboðavinnu, sem samsvarar 350 manns í fullri vinnu.
Samfélagssjóður Alcoa er orðinn 56 ára gamall og hefur frá upphafi veitt yfir 490 milljónir Bandaríkjadala (56 milljarða króna) til þess að mæta þörfum samfélaga um allan heim, þar sem fyrirtækið er með starfsstöðvar. 14,3 milljónir dala voru veittar til styrktar samfélögum að fást við efnahagsvandann:
- 3 milljónir til að veita grundvallarþjónustu og neyðaraðstoð
- 5,3 milljónir til endurhæfingar og tæknináms til að hjálpa samfélögum að mæta þörfum á breyttum vinnumarkaði
- 6 milljónir til að tryggja aðgang að heilbrigðisþjónustu fyrir börn og bæta hana
Eitt af markmiðum samfélagssjóðs Alcoa er að stuðla að sjálfboðavinnu starfsmanna í þágu samfélagsins og greitt er úr sjóðnum samhliða sjálfboðaverkefnum eftir ákveðnum reglum. Á síðasta ári voru 19.800 sjálfboðaverkefni innt af hendi, en það töldust yfir 705.000 vinnustundir, sem samsvarar 350 manns í fullri vinnu. Með þessum verkefnum greiddi samfélagssjóður Alcoa yfir 4 milljónir dollara til frjálsra félagasamtaka og stofnana. Aldrei hafa jafnmargir starfsmenn tekið þátt í sjálfboðavinnunni í október (Worldwide Month of Service) en það voru tæplega 22.000 starfsmenn sem unnu 699 þjónustuverkefni fyrir hjálparsamtök og stofnanir. Til viðbótar þeim verkefnum sem tengdust kreppunni tóku Alcoa og samfélagssjóðurinn þátt í verkefnum í 32 löndum sem m.a. fást við að mæta loftslagsbreytingum, efla menntun og starfshæfni, bæta heilsu og öryggi barna og styrkja samfélagið á ýmsan hátt. Í takt við þann árangur Alcoa að hafa dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um 36% frá árinu 1990 til 2008, hefur fyrirtækið beint sjónum að ýmsum verkefnum sem fela í sér aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Á sl. þremur árum (2006-2008) hefur samfélagssjóður Alcoa veitt meira en 22 milljónum Bandaríkjadala (2,5 milljörðum króna) til samfélagsverkefna á þessu sviði, t.d. til að auka meðvitund almennings um loftslagsvandann og hvetja til aðgerða gegn honum. Þessu til viðbótar hefur Alcoa frá árinu 2005 lagt 9,2 milljónir dala (einn milljarð íslenskra króna) í verkefni sem kallast „Conservation & Sustainability Fellowship Program“ en markmið þess er að finna betri leiðir til lausnar ýmsum vandamálum sem heimurinn á við að etja: loftslagsbreytingar, framboð á vatni, skynsöm orkunýting og vöxtur og þróun í öllum heimshornum. Endurvinnsla skiptir miklu máli þegar talað er um sjálfbæra þróun í heiminum og hefur sterka tengingu við álvinnslufyrirtækið Alcoa sem leggur mikið upp úr endurvinnslu áls. Samfélagssjóður Alcoa hefur styrkt 30 endurvinnsluverkefni á undanförnum þremur árum með framlagi sem nemur 1,3 milljónum dala (149 milljónum króna). Samfélagssjóðurinn hefur einbeitt sér að menntun og starfshæfni sem eru mikilvægir þættir í styrkingu samfélagsins. Árið 2008 runnu 24% af framlögum sjóðsins til að bæta aðgengi að góðri menntun, efla menntastofnanir og veita tækifæri til starfsmenntunar fyrir fólk á breyttum vinnumarkaði. Samtökin Global Kids fengu styrk til að veita ungu fólki undir fátækramörkum í New York möguleika á háskólamenntun, þrír háskólar í Rússlandi fengu styrk til að bæta verkfræðikennslu og námskeið fyrir þá sem vilja stofna eigið fyrirtæki í Brunei var styrkt, en samtals veitti Alcoa sjóðurinn meira en 6 milljónir Bandaríkjadala til menntunar og þjálfunar. Að síðustu má nefna hvað samfélagssjóður Alcoa hefur gert á Íslandi, m.a. til að efla landsbyggðina en sjá má dæmi um nokkur verkefni hér til hliðar. Meðal styrkja sem veittir voru á árinu 2008 eru þessir:
- Starfsendurhæfing Austurlands. Verkefni til hjálpar einstaklingum að komast aftur á vinnumarkaðinn. Styrkupphæð 70.000 dollarar, eða um 8 milljónir króna á núverandi gengi.
- Verkefni á vegum stéttarfélaga í Þingeyjarsýslu, í samstarfi við sveitarfélagið Norðurþing sem ber heitið „Samvinna og ábyrgð í málefnum innflytjenda.“ Styrkupphæð 30.000 dollarar, eða um 3,5 milljónir króna á núverandi gengi.
- Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs. Listahátíð ungs fólks á Austurlandi. Styrkupphæð 21.300 dollarar, eða um 2,5 milljónir króna á núverandi gengi.
|
 |
 Nokkur dæmi um styrki frá samfélagssjóði Alcoa

 Á þessum tveimur árum sem liðin eru frá því að álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hóf starfsemi hefur samfélagssjóður Alcoa (Alcoa Foundation) veitt eina og hálfa milljón Bandaríkjadala - sem nemur 178 milljónum íslenskra króna - til góðra verkefna á Íslandi. Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi um styrkveitingar.


|