

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
31. janúar 2009
Alcoa útnefnt eitt af sjálfbærustu fyrirtækjum heims
Alcoa greindi frá því í vikunni að fyrirtækið sé enn á ný á lista heimsviðskiptaráðstefnunnar í Davos í Sviss yfir 100 sjálfbærustu fyrirtæki heims. Alcoa hefur verið á þessum lista allt frá því að hann var fyrst gefinn út árið 2005.
Á listanum eru hundrað fyrirtæki með mjög fjölbreytta starfsemi frá 15 löndum. Listinn er unninn á grunni upplýsinga um frammistöðu fyrirtækjanna á sviði umhverfis- og samfélagsmála, í samanburði við önnur fyrirtæki í sama geira. Í ár voru upplýsingar um fyrirtækin eitthundrað greindar allt aftur til stofnunar þeirra og lagt var mat á hversu vel þau hefðu haldið á samskiptum við hagsmunaaðila. 46 af þessum hundrað fyrirtækjum, þar á meðal Alcoa, hafa starfað í meira en eina öld.
|
 |
|