

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
20. febrúar 2009
Samráðshópur metur þörf fyrir vöktun vegna langtímaáhrifa álvers á Bakka, virkjana og flutningslína
Alcoa, Landsnet og Landsvirkjun/Þeistareykir hafa hafið vinnu við mótun svokallaðra sjálfbærnivísa vegna uppbyggingar og starfsemi fyrirhugaðs álvers á Bakka, virkjana og flutningslína.
Verkefnið er leið fyrirtækjanna til að kynna sér þær væntingar sem íbúar á svæðinu og aðrir hagsmunaaðilar hafa til framkvæmdanna og einnig þær áhyggjur sem þeir hafa vegna svo umfangsmikilla verkefna. Fyrirtækin skuldbinda sig til að fylgjast með ákveðnum þáttum til frambúðar þannig að unnt sé að mæla eftir ákveðnum aðferðum, áhrif framkvæmdanna á umhverfi, efnahag og samfélag. Á fyrsta fundinum sem haldinn var í samráðshópi verkefnisins kom meðal annars fram að þátttakendum er umhugað um að standa vörð um ákveðnar náttúruperlur á svæðinu. Þeir telja einnig mikilvægt að sveitarfélögin verði undir það búin að mæta breytingum vegna framkvæmdanna án þess þó að fara of geyst til dæmis í íbúðabyggingar og fleira. Einnig var rætt um mikilvægi þess að fylgjast með efnahagslegum áhrifum framkvæmdanna. Með sjálfbærnivísum verða til viðmið varðandi þætti á sviði umhverfis‐, efnahags‐ og samfélagsmála sem framkvæmdirnar munu hafa áhrif á og sem hagsmunaaðilar verða sammála um að þurfi að vakta sérstaklega. Verkefnið er unnið með samráðshópi sem skipaður er fulltrúum um 40 hagsmunaaðila. Sambærilegt verkefni var unnið í tengslum við álver, virkjun og flutningslínur á Austurlandi og var það brautryðjendastarf á þessu sviði. Verkefnið á Norðausturlandi byggir á þeirri reynslu sem fékkst af því verkefni. Þar kom fram að æskilegra hefði verið að hefja vinnu við mótun vísanna fyrr og því er unnið að sjálfbærniverkefninu nú samhliða ferlinu við mat á umhverfisáhrifum. Notkun hugtakanna sjálfbær þróun og sjálfbærni í þessu verkefni felur ekki í sér yfirlýsingu um að framkvæmdirnar séu eða verði sjálfbærar heldur fremur vilja fyrirtækjanna að fylgja þeirri stefnu að framkvæmdirnar falli sem best að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Það er von stýrihóps verkefnisins, að það að hefja vinnuna nú, verði þeim sem eiga fulltrúa í samráðshópnum hvatning til virkrar þátttöku í lögformlegu ferli vegna mats á umhverfisáhrifum. Í samráðshópnum eiga fulltrúa, sveitarfélög, stofnanir og frjáls félagasamtök, sem ýmist eru fylgjandi eða andvíg uppbyggingunni. Samráðshópurinn hittist á sínum fyrsta fundi þann 10. febrúar síðastliðinn og ræddi meðal annars um væntingar og áhyggjur varðandi þá þætti sem framkvæmdirnar munu hafa áhrif á. Nú munu sérfræðingar vinna úr því sem þar kom fram í því skyni að endanlegir vísar endurspegli þessar ábendingar samráðshópsins. Samráðshópurinn er þannig skipaður að þátttakendur búa yfir víðtækri þekkingu á þeim þremur sviðum sem eru til umræðu, þ.e. umhverfi, efnahag og samfélagi. Hópurinn endurspeglar einnig sjónarmið heimamanna, sjónarmið mismunandi atvinnugreina og tryggt er að raddir bæði fylgjenda og andmælenda framkvæmdanna heyrist. Lögð er áhersla á að þátttaka andmælenda í hópnum felur ekki í sér stuðning þeirra við framkvæmdirnar. Samráðsferlinu og fundum hópsins er stýrt af hlutlausum fagaðila. Þekkingarsetur Þingeyinga sinnir umsýslu og leggur til sérfræðiþekkingu vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að hópurinn hittist allt að fjórum sinnum en meginþungi vinnunnar verður á árinu 2010. Sjá má upplýsingar um sjálfbærniverkefnið á Austurlandi á vefnum www.sjalfbaerni.is og mun sú síða einnig hýsa upplýsingar um verkefnið á Norðausturlandi, á síðari stigum. Nánari upplýsingar veita: Haraldur Reinhardsson hjá Þekkingarsetri Þingeyinga, sími 464-5100, netfang haddi@hac.is Finnur Sveinsson, verkefnisstjóri, sími 843 775, netfang Finnur.Sveinsson@alcoa.com
|
 |
|