

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
20. janúar 2009
Alcoa vill lagasetningu gegn loftslagsbreytingum
Samtökin U.S. Climate Acton Partnership (USCAP), sem Alcoa stofnaði ásamt öðrum fyrirtækjum og umhverfisverndarsamtökum í Bandaríkjunum, kynnti fyrir helgina áætlun um hvernig bregðast megi við loftslagsbreytingum.
Áætlun USCAP byggir á tillögum samtakanna frá árinu 2007 þegar þau skoruðu á stjórnvöld í Bandaríkjunum að grípa tafarlaust til aðgerða gegn þeim. Áætlunin inniheldur meðal annars tillögur um lagasetningu á þessu sviði sem beint verður til nýrrar ríkisstjórnar Obama og 111. þings Bandaríkjanna. Í þeim er lögð áhersla á að vernda bæði umhverfi og atvinnulíf. Í áætluninni er meðal annars gert ráð fyrir að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda í Bandaríkjunum um 80% frá árinu 2005 til 2050 og að lögfest verði víðtækt viðskiptakerfi með loftslagsheimildir. „Í þessari áætlun eru greinargóðar tillögur um hvernig bregðast má við loftslagsbreytingum og í þeim er ítrekaður stuðningur við bandarískt viðskiptakerfi með loftslagsheimildir. Á þessum erfiðu tímum í viðskiptalífinu staðfesta þessi grænu áform þá trú okkar hjá Alcoa að mikilvægt sé að grípa strax til aðgerða til að bregðast við vandanum og skýra stöðuna hjá fyrirtækjum varðandi langtíma fjárfestingar. Ef við sitjum auðum höndum verður kostnaður samfélagsins enn meiri í framtíðinni og einnig óvissan í rekstri fyrirtækja,“ sagði Alain Belda, stjórnarformaður Alcoa. Tillögurnar eru árangur tveggja ára greiningar og samningaviðræðna og fela meðal annars í sér metnaðarfulla áætlun um hvernig megi draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þær lýsa umfangi viðskiptakerfis með loftslagsheimildir og útlista aðgerðir til að tryggja samkeppnishæfni bandarískra fyrirtækja. Þá er einnig lýst mögulegum leiðum til betri orkunýtingar, bættra samgangna, nútímavæðingar koladrifinna orkuvera og bygginga – og tillögurnar gera ráð fyrir sparnaðaraðgerðum og þátttöku í alþjóðlegum verkefnum. Stuðningur við rannsóknir og notkun nýrrar tækni er meginatriði í umfangsmiklum tillögum USCAP samtakanna. „Tillögur samtakanna um lagasetningu í loftslagsmálum í Bandaríkjunum vísar leið sem gæti reynst fyrirtækjum eins og Alcoa vel til að ná settum markmiðum varðandi verndun loftslags og fellur um leið vel að skyldum okkar við hluthafa,” sagði forstjóri Alcoa, Klaus Kleinfeld. Sjá meira um USCAP og áætlunina hér.
|
 |
|