alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

27. janúar 2009
Stærsta leiklistarhátíð Íslands haldin á Austurlandi í vor

Þrettán leikhópar ungs fólks á Austurlandi undirbúa nú sýningar á þremur nýjum, íslenskum leikritum. Uppsetning verkanna er liður í Þjóðleik, leiklistarhátíð ungs fólks á Austurlandi, sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti forsvarsmönnum verkefnisins um tveggja og hálfrar milljón króna styrk frá alþjóðlegum Samfélagssjóði Alcoa við athöfn í höfuðstöðvum Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í dag.

Hátt í tvö hundruð ungmenni í þrettán leikhópum af öllu Austurlandi, allt frá Vopnafirði að Höfn í Hornafirði, taka þátt í Þjóðleik og æfa nú ný leikverk eftir Bjarna Jónsson, Sigtrygg Magnason og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem voru skrifuð sérstaklega fyrir verkefnið. Hver hópur mun frumsýna í sinni heimabyggð, en uppskeruhátíð verður haldin á Egilsstöðum 25.-26. apríl næstkomandi, þar sem allir hóparnir koma saman og sýna verk sín. Þetta verður stærsta leiklistarhátíð sem haldin hefur verið hér á landi.
 
Stjórnendur hópanna hafa undanfarið notið aðstoðar og faglegrar leiðsagnar sérfræðinga og listamanna Þjóðleikhússins. Námskeið hafa verið haldin í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði, og hafa þau verið mjög vel sótt.
 
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, sagði við afhendingu styrksins í dag: „Öflugt menningarlíf er forsenda byggðar alls staðar á landinu, ekki síður en öflugt atvinnulíf. Við breyttar aðstæður í samfélaginu var lögð sérstök áhersla á það við  úthlutun styrkja úr Samfélagssjóði Alcoa að þau verkefni sem hlytu styrk byggðust á þátttöku sem allra flestra og einnig að sem flestir gætu notið  þeirra.  Það er þess vegna mjög ánægjulegt að sjá hversu góð þátttaka er í þessu spennandi verkefni."
 
Tinna Gunnlaugsdóttir, þjóðleikhússstjóri sagði við sama tilefni: „Nú um stundir er mikilvægi verkefnis sem þessa ótvírætt enda er inntak þess samstaða og sköpunarkraftur. Margfeldisáhrif Þjóðleiksverkefnisins verða gífurleg og það er von leikhússins að allir þeir sem að því koma muni búa lengi að reynslu sinni og að hún verði hvatning til fleiri góðra verka.”
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Tinna tekur við styrknum f.h. Þjóðleikhússins


Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, afhendir Tinnu Gunnlaugsdóttur, Þjóðleikhússtjóra styrkinn frá Samfélagssjóði Alcoa í mötuneyti álversins í Reyðarfirði í dag.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Spunaæfing í álverinu


Tveir nemendur frá grunnskóla Eskifjarðar sýndu spunaverk við afhendingu styrksins.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina