alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

8. janúar 2009
Alcoa bregst við kreppunni

Alcoa hefur tilkynnt að fyrirtækið muni grípa til aðgerða til  að bæta eiginfjárstöðu, draga úr kostnaði og styrkja stöðu þess á samkeppnismarkaði á meðan efnahagsástandið í heiminum er í lægð. Aðgerðirnar hafa ekki áhrif á Fjarðaál í Reyðarfirði. 

Helstu aðgerðir Alcoa eru:
  • Dregið verður úr álframleiðslu um 750.000 tonn á ári, sem samsvarar 18% framleiðslunnar
  • Starfsmönnum verður fækkað um 13.500 (13 % af heildarmannafla fyrirtækisins) auk þess sem 1.700 verktakastörf verða lögð af
  • Laun verða fryst og ráðningum hætt tímabundið
  • Fjögur framleiðslufyrirtæki í eigu Alcoa sem starfa utan álframleiðslu verða seld
  • Dregið verður úr fjárfestingarkostnaði um 50%
  • Nýjar leiðir verða nýttar til hráefnisöflunar
  • Skipt á eignarhaldi við Orkla: Alcoa fær 100% eignarhald í tveimur álverum og rafskautaverksmiðju Elkem í Noregi en lætur eftir 45% hlut í sænska fyrirtækinu SAPA

Reiknað er með að gjaldfærður kostnaður á fjórða ársfjórðungi 2008 nemi 900-950 milljónum Bandaríkjadala eftir skatta. Um 80% þess kostnaðar hefur ekki áhrif á handbært fé.
 
Þessar aðgerðir byggja að nokkru leyti á ákvörðunum fyrirtækisins sem kynntar voru í október sl., en þær fela í sér frekari samdrátt í framleiðslu, hagkvæmari innkaup og minni kostnað, hagræðingu í framleiðslu, minni kostnað vegna nýrra fjárfestinga og aðrar sparnaðaraðgerðir.
 
„Þetta eru óvenjulegir tímar sem kalla á hröð og ákveðin viðbrögð til þess að takast á við efnahagskreppuna sem nú ríkir í heiminum, ásamt sveigjanleika og framsýni til þess að vera viðbúin óvissu á álmarkaðinum,“ segir Klaus Kleinfeld, forstjóri og stjórnarformaður Alcoa Inc. „Við erum að grípa til stórtækra og skynsamlegra aðgerða til þess að tryggja að Alcoa haldi forystu á kröfuhörðum markaði og ætlum okkur að koma enn sterkari út þegar efnahagslífið verður búið að ná sér.“
 
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir þessar aðgerðir ekki hafa bein áhrif á Fjarðaál. „Við erum búin að ráða í öll störf og höfum verið að auka framleiðsluna í kerskálunum hjá okkur og á því verður engin breyting. Við þurfum hins vegar að bregðast við erfiðleikum á mörkuðum með hagræðingu og ráðdeild í rekstri og til þess eru mörg tækifæri,” segir Tómas.
 

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina