

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
27. janúar 2009
Góður orðstír Alcoa
Fyrr í vikunni var tilkynnt að Alcoa hefði enn á ný lent í einum af efstu sætunum meðal fyrirtækja í auðlindavinnslu á árlegum lista Covalence sem metur og mælir orðstír alþjóðlegra fyrirtækja.
Alcoa var einnig valið eitt af topp tíu fyrirtækjunum í öllum geirum viðskipta og iðnaðar. Fyrirtækið hefur verið efst á lista í málm- og námuiðnaði og eitt af topp tíu meðal allra fyrirtækja frá því að þessar mælingar hófust árið 2005. Covalence eru frjáls félagasamtök með höfuðstöðvar í Genf en þau fylgjast náið með 541 fyrirtækjum í 18 geirum. Samtökin mæla frammistöðu fyrirtækja samkvæmt 45 mælikvörðum, m.a. meðferð úrgangs, virðingu mannréttinda, högum starfsfólks o.fl. Nánari upplýsingar: http://www.covalence.ch
|
 |
|