
|
 |
Fréttasafn ársins 2008
28. nóvember 2008
Skipulagsstofnun fellst á frummatsskýrslu vegna álvers á Bakka
Í samræmi við 8. grein laga um mat á umhverfisáhrifum hefur Skipulagsstofnun farið yfir framlagða tillögu Alcoa að matsáætlun vegna álvers á Bakka við Húsavík, ásamt þeim umsögnum og athugasemdum sem bárust stofnuninni.
meira
24. nóvember 2008
Nærri 80% landsmanna telja að álver hafi jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf
Rúmlega 78 prósent landsmanna telja að álver hafi frekar eða mjög jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Aðeins rúmlega átta prósent telja áhrifin frekar eða mjög neikvæð. Þetta kemur fram í niðurstöðum landskönnunar sem Capacent Gallup gerði nýlega fyrir Alcoa Fjarðaál.
meira
11. nóvember 2008
Framleiðsla Alcoa Fjarðaáls óbreytt
Alcoa Inc. greindi frá því í gær að álframleiðsla fyrirtækisins á heimsvísu verði dregin saman um 350.000 tonn á ári. Þessi samdráttur mun ekki hafa áhrif á framleiðslu hjá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði sem er nýjasta og fullkomnasta álverið í eigu fyrirtækisins. Í október var greint frá lokun álvers Alcoa í Rockdale í Texas. Samtals mun fyrirtækið því draga úr framleiðslu um 15% á seinni hluta ársins, eða um 615.000 tonn.
meira
7. nóvember 2008
Forstjóri Alcoa á Íslandi svarar Andra Snæ
Fréttablaðið birti í dag grein eftir Tómas Má Sigurðsson, forstjóra Alcoa á Íslandi, þar sem farið er í saumana á fullyrðingum Andra Snæs í nýlegri grein í Fréttablaðinu. Tómas segir að ekki standi steinn yfir steini í málflutningi skáldsins.
meira
31. október 2008
Sameiginleg yfirlýsing um undirbúning framkvæmda á Norðausturlandi
Eins og kunnugt er hafa Landsvirkjun, Alcoa og Þeistareykir ehf. unnið sameiginlega að undirbúningi jarðvarmavirkjana á Norðausturlandi vegna orkusölu til fyrirhugaðs álvers Alcoa á Bakka við Húsavík. Þetta samstarf hefur byggst á viljayfirlýsingu milli Landsvirkjunar og Alcoa frá í sumar. Um verkefnið hefur verið náin samvinna við sveitarfélögin Norðurþing, Þingeyjarsveit og Skútustaðahrepp sem lagt hafa fram fjármuni og vinnu í undirbúning þess.
meira
29. október 2008
Alcoa hlýtur viðurkenningu fyrir bindingu kolefnis í Ástralíu
Greint var frá því í vikunni að súrálsverksmiðja Alcoa í Kwinana í Ástralíu hafi hlotið viðurkenningu ástralska námuiðnaðarins sem jarðefnaúrvinnsla ársins 2008.
meira
24. október 2008
Íbúafundir Fjarðaáls á Austurlandi
Gangsetningu Alcoa Fjarðaáls er lokið og verið er að ganga frá ráðningu síðustu starfsmanna. Framleiðslulínur í steypuskála nálgast full afköst og losun gróðurhúsaloftegunda og annarra útblástursefna er innan þeirra marka sem kveðið er á um í starfsleyfi álversins.
meira
24. október 2008
Alcoa Fjarðaál hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs 2008
Í dag afhenti Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa Fjarðaáls, viðurkenningu Jafnréttisráðs 2008 en hana hlýtur fyrirtækið m.a. fyrir góðan árangur í því að vinna gegn kynbundnu starfsvali og kynjaskiptingu vinnumarkaðar.
meira
22. október 2008
Tillaga að matsáætlun lögð inn til Skipulagsstofnunar
Alcoa og HRV kynna nú tillögu að matsáætlun vegna álvers á Bakka við Húsavík með framleiðslugetu allt að 346.000 tonn á ári. Tillagan er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun næstu 4 vikurnar og er auglýst á vef Skipulagsstofnunar. Tillöguna má sækja á vefsíðum Alcoa og HRV.
meira
10. október 2008
Tómas Már Sigurðsson skipaður forstjóri Alcoa á Íslandi
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði, hefur verið skipaður í nýja stöðu forstjóra Alcoa á Íslandi. Undir hann mun heyra álverið í Reyðarfirði og áætlanir um byggingu álvers á Bakka við Húsavík. Tími hans mun skiptast jafnt milli þessara tveggja verkefna.
meira
3. október 2008
Ál flutt út fyrir 100 milljarða
Flutt hefur verið út ál fyrir meira en 100 milljarða króna á árinu, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.
meira
30. september 2008
Alcoa í fremstu röð í viðbrögðum gegn loftslagsbreytingum
Alcoa tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði hlotið viðurkenningu fyrir upplýsingagjöf um losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta er sjötta árið í röð sem Alcoa fær þessa viðurkenningu. Það eru alþjóðleg samtök fjárfesta, Carbon Disclosure Project (CDP) sem standa að viðurkenningunni.
meira
25. september 2008
Alcoa hlýtur viðurkenningu fyrir ábyrga samfélagsstefnu
Greint var frá því í New York í gær að Alcoa hafi hlotið „Open Mind“ viðurkenningu Alþjóða menntastofnunarinnar (Institute of International Education, IIE) fyrir samfélagslega ábyrgð, starf sitt að menntamálum og áherslu á umhverfismál og aukna sjálfbærni. Klus Kleinfeld, forstjóri Alcoa tók við viðurkenningunni fyrir hönd Alcoa við hátíðarkvöldverð í New York í gær.
meira
23. september 2008
Yfir 100 manns taka þátt í sjálfboðaliðastarfi á Austurlandi
Sjálfboðaliðar úr röðum starfsmanna Alcoa Fjarðaáls störfuðu að samfélagsverkefnum á Austurlandi á laugardaginn undir kjörorðinu „Leggjum hönd á plóg“. Þátttaka starfsmanna í þessum verkefnum er liður í víðtæku samfélagsstarfi sem starfsmenn Alcoa vinna að um allan heim.
meira
15. september 2008
Alcoa Plays Part in Nobel Peace Prize on Climate Change
Nobel Winner IPCC Recognizes Four Alcoa Employees for Their Efforts in Accumulating and Disseminating Knowledge about Climate Change.
meira
15. september 2008
Alcoa á hlut að Nóbelsverðlaunum fyrir loftslagsmál
Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC), núverandi handhafi Friðarverðlauna Nóbels, hefur opinberlega þakkað fjórum starfsmönnum Alcoa fyrir framlag þeirra við að safna saman og miðla þekkingu um loftslagsbreytingar.
meira
11. september 2008
Alcoa í sjálfbærnivísitölu Dow Jones, sjöunda árið í röð
Greint var frá því á dögunum að Alcoa sé hluti af sjálfbærnivísitölu Dow Jones, sjöunda árið í röð. Val á fyrirtækjum í vísitöluna er byggt á mati frammistöðu fyrirtækja í umhverfis-, félags- og efnahagsmálum.
meira
8. september 2008
Fjarðaál og starfsmenn þess styrkja Krabbameinsfélagið
Alcoa Fjarðaál keypti 225 slaufur af Krabbameinsfélagi Íslands og gaf starfsmannafélagi fyrirtækisins. Starfsmannafélagið hyggst selja þær starfsmönnum til styrktar félögum sem berjast við krabbamein.
meira
3. september 2008
Alcoa 120 ára
Fyrirtækið sem lagði grundvöllinn að áliðnaði heimsins er 120 ára um þessar mundir.
meira
26. ágúst 2008
Til hamingju Ísland!
Eins og alþjóð veit stóðu strákarnir okkar sig frábærlega á Ólympíuleikunum í Beijing í Kína. Aldrei áður hefur svo lítil þjóð fagnað verðlaunum í liðaíþrótt á Ólympíuleikum.
meira
26. ágúst 2008
Snúið aftur í heimahagana
Í Morgunblaðinu í dag birtist skemmtilegt viðtal við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, starfsmann í upplýsinga- og samfélagsteymi. Hún segir meðal annars að í raun hafi tveir klukkutímar bæst við hvern dag hjá sér eftir að hún flutti aftur austur.
meira
22. ágúst 2008
Nýtt upplýsingaskilti við þjóðveginn
Það er í mörg horn að líta þegar nýtt álver er gangsett. Í síðustu viku var nýtt upplýsingaskilti sett upp við þjóðveginn ofan við kerskála Alcoa Fjarðaáls.
meira
20. ágúst 2008
Hundruð gesta hafa heimsótt álverið í sumar
Alcoa Fjarðaál hefur boðið gestum í heimsókn í álverið á laugardögum í sumar til að kynna sér starfsemi fyrirtækisins. Mikill fjöldi gesta hefur nýtt tækifærið og síðastliðinn laugardag, komu til dæmis yfir hundrað manns í heimsókn.
meira
24. júlí 2008
Heimamenn völdu Alcoa
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, segir í viðtali við Viðskiptablaðið í gær, miðvikudaginn 23. júlí, að ekkert bendi til annars en að álver á Bakka verði að veruleika. Hann segir allflesta Norðlendinga binda miklar vonir við byggingu álvers á Bakka með tilheyrandi virkjunarframkvæmdum á Þeistareykjum og í Gjástykki.
meira
23. júlí 2008
AlcoaTV: Ný vefsíða með lifandi myndefni
Alcoa hefur nýlega sett í loftið vefsíðu sem kallast AlcoaTV en þar er í boði lifandi myndefni í anda hinnar vinsælu vefsíðu YouTube. Á þessari síðu er að finna samansafn af öllu myndbandsefni sem er að finna á einhverri af hinum 85.000 síðum fyrirtækisins.
meira
23. júlí 2008
Alcoa gerir samning um vistvæna orku í Washington
Alcoa tilkynnti nýverið að fyrirtækið hefði náð samkomulagi við Chelan PUD orkufyrirtækið um nýjan samning um vistvæna vatnsaflsorku fyrir Wenatchee álverið í Washington til ársins 2028. Nýi samningurinn tekur gildi árið 2011 og samkvæmt honum mun Chelan PUD veita álverinu næga orku til að gangsetja þriðja kerskála þess árið 2012.
meira
18. júlí 2008
Alcoa kynnir endurskoðuð drög að tillögu að matsáætlun vegna álvers á Bakka við Húsavík
Alcoa kynnir nú endurskoðuð drög að tillögu að matsáætlun vegna álvers á Bakka við Húsavík með framleiðslugetu upp á 250.000 til 346.000 tonn á ári. Drögin eru aðgengileg á vefsíðum Alcoa (http://www.alcoa.is) og HRV (http://www.hrv.is). Frestur til að gera athugasemdir er til og með 6. ágúst næstkomandi.
meira
16. júlí 2008
Alcoa og Landsnet framlengja viljayfirlýsingu vegna álvers á Bakka
Alcoa og Landsnet hafa framlengt viljayfirlýsingu um raforkuflutninga vegna álvers á Bakka til loka árs 2009. Vinna gengur samkvæmt áætlun samkvæmt fyrri viljayfirlýsingu fyrirtækjanna.
meira
4. júlí 2008
Alcoa og Landsvirkjun taka upp viðræður um orkukaup
Alcoa og Landsvirkjun munu á næstunni taka upp formlegar viðræður um orkukaup vegna álvers á Bakka. Stefnt er að því að viðræðunum ljúki fyrir árslok 2009.
meira
1. júlí 2008
Alcoa og Landsvirkjun semja um djúpborun við Kröflu
Alcoa og Landsvirkjun undirrituðu í gær samkomulag um að Alcoa styrki borun fyrstu borholunnar við Kröflu í íslenska djúpborunarverkefninu.
meira
26. júní 2008
Viljayfirlýsing um álver á Bakka við Húsavík framlengd
Fulltrúar Alcoa, ríkisstjórnar Íslands og Norðurþings framlengdu í dag viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver á Bakka við Húsavík, til 1. október árið 2009. Um er að ræða framlengingu og uppfærslu á viljayfirlýsingu þessara aðila sem undirrituð var í maí árið 2006.
meira
24. júní 2008
G8 ríkin hvött áfram í loftslagsmálum
Alain Belda, stjórnarformaður Alcoa samsteypunnar er meðal 99 viðskiptaleiðtoga sem hvetja leiðtoga G8 til að taka forystu í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
meira
23. júní 2008
Álið, Björk og Alcoa
"Álframleiðsla er leið til að skapa útflutningsverðmæti úr endurnýjanlegum orkuauðlindum landsins, til að treysta grundvöll íslensks velferðarsamfélags"
meira
20. júní 2008
150 konur í kaffi
Alcoa Fjarðaál bauð konum í bleikt kaffiboð á kvenréttindadaginn 19. júní. Boðið tókst mjög vel og á milli 150 og 160 konur á öllum aldri og af öllu svæðinu kíktu við í kaffi.
meira
19. júní 2008
Bleikt kaffiboð
Fjarðaál býður konum í kaffi á kvennadaginn, 19. júní kl. 17.
meira
13. júní 2008
Þankaþing í Fjarðabyggð
Árangursríkt og vel sótt þankaþing var haldið á Reyðarfirði þriðjudaginn 10. júní síðastliðinn. Yfirskrift þingsins var ,,Vor í Fjarðabyggð".
meira
13. júní 2008
Matsferli hafið vegna álvers á Bakka við Húsavík: Alcoa kynnir drög að tillögu að matsáætlun
Hafið er matsferli vegna álvers á Bakka við Húsavík. Til skoðunar er bygging álvers með allt að 250.000 tonna ársframleiðslu.
meira
10. júní 2008
Ferðaþjónusta á Norðausturlandi
Hörður Sigurbjarnarson, forstjóri Norðursiglingar, stærsta hvalaskoðunarfyrirtækisins á Húsavík, birti grein í Fréttablaðinu nýlega þar sem hann segist styðja heilshugar byggingu álvers á Bakka við Húsavík að því gefnu að farið sé að settum reglum og vandað til hönnunar mannvirkja og allra framkvæmda.
meira
28. maí 2008
Fjarðaál styrkir Kirkju- og menningarmiðstöðina í Fjarðabyggð
Alcoa Fjarðaál verður meginstyrktaraðili Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar í Fjarðabyggð næstu 3 árin. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls og Davíð Baldursson, stjórnarformaður Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar undirrituðu samning þess efnis í miðstöðinni í dag.
meira
26. maí 2008
Framkvæmdastjórn Alcoa Fjarðaáls
Gangsetningu Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði lauk í síðasta mánuði og nú tekur við daglegur rekstur eins stærsta framleiðslufyrirtækis landsins. Í tengslum við lok gangsetningar hafa nokkrar tilfærslur átt sér stað innan framkvæmdastjórnar fyrirtækisins.
meira
20. maí 2008
Alcoa stendur sig best álfyrirtækja í öryggismálum
Á nýafstöðnum ársfundi Alþjóða álstofnunarinnar (International Aluminium Institute) í Suður Afríku, hlaut Alcoa, móðurfélag Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði, viðurkenningu fyrir besta frammistöðu álfyrirtækja í öryggismálum árið 2006. Alþjóða álstofnunin er félagsskapur 25 álframleiðenda sem samtals framleiða yfir 80% þess áls sem framleitt er í heiminum.
meira
19. maí 2008
Listrænt Ferðalag um Austurland
Um hundrað íslenskir og erlendir gestir gerðu sér Ferðalag um Austurland á laugardaginn til að upplifa samvinnuverkefni þriggja listastofnana á Austurlandi. Á dagskránni eru innsetningar, gjörningar, uppákomur, dans og tónlistarflutningur. Sænski myndlistarmaðurinn Lennart Alvés sýnir meðal annars rafmagnsmastur úr áli á túninu við Listasetrið á Eiðum og álverk og ljósmyndir af rafmagnsmöstrum á veggjum íþróttahússins.
meira
14. maí 2008
Grænlenska þingið samþykkir áframhaldandi rannsóknir
Grænlenska þingið hefur samþykkt að hefja annan áfanga rannsókna á möguleikum á byggingu álvers á Grænlandi. Greint var frá þessu í fréttatilkynningu frá Alcoa Inc. í gær.
meira
7. maí 2008
Bílgrind úr áli fær Evrópsku nýsköpunarverðlaunin
Uppfinningateymi Audi fyrirtækisins hlaut Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í flokki iðnaðar í vikunni fyrir þróun sína á léttri og sterkri bílgrind úr áli sem unnið var að í samstarfi við Alcoa. Verðlaunin voru afhent af Danilo Turk, forseta Slóveníu, Gunther Verheugen, varaforseta Evrópuráðsins og Alison Brimelow forstjóra Evrópsku einkaleyfastofunnar í Ljubljana í Sloveníu á mánudaginn var.
meira
6. maí 2008
Alcoa sjóðurinn styrkir íslenska nútímalist í New York
Samfélagssjóður Alcoa er ásamt íslenskum yfirvöldum aðalstyrktaraðili yfirlitssýningar Listasafns Íslands á íslenskri nútímalist, sem var opnuð þann 1. maí í Scandinavia House í New York.
meira
2. maí 2008
Austfirðingar enn á flugi
Á sunnudaginn var, birtist grein í Morgunblaðinu eftir Gunnlaug Aðalbjarnarson, kaupfélagsstjóra Kaupfélags Héraðsbúa. Í greininni lýsir hann sinni upplifun á því hvaða áhrif bygging álvers Alcoa Fjarðaáls hefur haft á samfélagið á Austurlandi og hvað íbúar Norðausturlands geta af henni lært, verði af byggingu álvers á Bakka við Húsavík.
meira
30. apríl 2008
Alcoa Fjarðaál úthlutaði 14 samfélagsstyrkjum í byrjun apríl
Alcoa Fjarðaál úthlutaði 14 samfélagsstyrkjum til fjölbreyttra verkefna á Austurlandi í byrjun apríl. Landsmót kvennakóra sem fór fram á Höfn í Hornafirði um síðustu helgi var meðal þeirra verkefna sem fengu styrk.
meira
29. apríl 2008
Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi 20 ára
Dagskrá Jazzhátíðar Egilsstaða á Austurlandi verður sérstaklega glæsileg í sumar, enda á hátíðin 20 ára afmæli. Alcoa Fjarðaál er meðal styrktaraðila hátíðarinnar.
meira
29. apríl 2008
Hundruð kvenna sungu á Höfn í Hornafirði
Hundruð kvenna sungu á Höfn í Hornafirði Á fjórða hundrað konur voru saman komnar á Höfn í Hornafirði um helgina en þar fór fram Landsmót kvennakóra. Alls tóku þrettán kvennakórar þátt í mótinu. Alcoa Fjarðaál var meðal styrktaraðila mótsins.
meira
28. apríl 2008
Fjarðaál styrkir KFF
Alcoa Fjarðaál verður meðal helstu stuðningsaðila meistaraflokka Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar næstu árin samkvæmt samstarfssamningi sem Bjarni Ólafur Birkisson, formaður KFF og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, skrifuðu undir fyrir helgina.
meira
21. apríl 2008
Atvinnuöryggi á Austurlandi
Helga Jónsdóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð, sagði í fréttum RÚV Rásar 1 og 2 í gær, sunnudaginn 20. apríl 2008 að uppbyggingin í atvinnumálum á Reyðarfirði undanfarin misseri sé einstök hér á landi. Hún sagði að atvinnuöryggi væri grundvallarlífsgæði og að „veisla sé að byrja” hérna fyrir austan.
meira
16. apríl 2008
Húsvíkingar í heimsókn
Fulltrúar Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis komu fyrir skömmu í heimsókn til Alcoa Fjarðaáls til að kynna sér starfsemi álversins. Heimsóknin var sprottin af áhuga heimamanna á uppbyggingu álvers á Bakka, en Alcoa vinnur að því ásamt sveitarstjórn Norðurþings og stjórnvöldum að kanna hagkvæmni þess að reisa þar álver.
meira
16. apríl 2008
Á Íslandi getur ál orðið að gulli
Það kveður við nýjan tón gagnvart Íslandi í nýrri grein í danska dagblaðinu Berlingske Tidende. Þar er fjallað á mjög jákvæðum nótum um uppbygginguna á Austurlandi í tengslum við byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.
meira
10. apríl 2008
Fjarðaál í Newsweek
Fjallað er um Alcoa Fjarðaál og einstakan árangur Íslendinga í nýtingu á endurnýjanlegum orkulindum landsins á þremur heilsíðum í nýjasta tölublaði tímaritsins Newsweek, sem er eitt víðlesnasta tímarit heims.
meira
9. apríl 2008
Alcoa Fjarðaál lýkur gangsetningu og fjölgar starfsmönnum
Síðasta rafgreiningarkerið var gangsett hjá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði í dag. Fyrirtækið ætlar að fjölga starfsmönnum á næstu vikum vegna aukinna verkefna.
meira
4. apríl 2008
Undirbúningur gengur vel fyrir álver á Bakka við Húsavík
Fullt var út úr dyrum á borgarafundi um álver á Bakka sem Norðurþing stóð fyrir á Fosshóteli, Húsavík, fimmtudaginn 3. apríl síðastliðinn. Hátt í 500 manns sóttu fundinn og hlýddu á erindi fyrirlesara frá Norðurþingi, Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, Landsneti, Landsvirkjun, HRV og Alcoa um undirbúning og stöðu mála varðandi álver á Bakka. Mikil og jákvæð stemmning var á fundinum og líflegar umræður spunnust að erindum loknum. Ljóst er að verkefnið nýtur mikils og almenns stuðnings á Húsavík og nágrenni.
meira
3. apríl 2008
Hreindýr og fiðurfé á álverslóðinni
Greint var frá því á RUV í vikunni að hópur hreindýra hafi undanfarið haldið sig nærri álverinu við Reyðarfjörð.
meira
3. apríl 2008
Fjarðaálsfréttum dreift á Austurlandi
Fyrsta tölublað Fjarðaálsfrétta er komið út og verður dreift meðal íbúa Mið-Austurlands á næstu dögum.
meira
3. apríl 2008
Borgarafundur um álver á Bakka við Húsavík
Norðurþing boðar til borgarafundar um verkefnið Framsækið samfélag með álver á Bakka, á morgun, fimmtudaginn 3. apríl, kl. 20:00-22:00 á Fosshóteli, Ketilsbraut 22 á Húsavík. Einnig verður efnt til morgunverðarfundar um verkefnið í Alþýðuhúsinu á Akureyri við Skipagötu 14. á 4. hæð, föstudaginn 4. apríl kl. 8:30-10:00.
meira
27. mars 2008
Álver á Bakka, segir bæjarstjóri Akureyrar
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar tíundaði kosti þess að byggja álver á Bakka í grein í Morgunblaðinu 20. mars 2008. Sigrún segir meðal annars í greininni að engin ein lausn sé í sjónmáli sem sé betur til þess fallin að tryggja blómlega byggð á svæðinu til langframa.
meira
25. mars 2008
300 ker gangsett
Áfanga var náð á föstudaginn langa, 21. mars 2008, hjá Alcoa Fjarðaáli, þegar þrjúhundraðasta rafgreiningarkerið var gangsett. Gangsetningu allra kera í öðrum kerskála fyrirtækisins er lokið og reiknað er með að gangsetningu allra keranna 336 ljúki innan skamms.
meira
13. mars 2008
Alcoa á lista Fortune 25. árið í röð
Hið þekkta bandaríska viðskiptatímarit Fortune Magazine hefur útnefnt Alcoa sem eitt virtasta fyrirtæki Bandaríkjanna, tuttugusta og fimmta árið í röð.
meira
27. febrúar 2008
Fullvinnsla áls hjá Alcoa Fjarðaáli
Framleiðsla er hafin á álvírum í steypuskála Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Þegar álverið verður komið í fullan rekstur mun um fjórðungur álframleiðsunnar verða notaður til framleiðsu á álvírum. Fyrstu gámarnir með vírum fara utan í næstu viku en gert er ráð fyrir að allt að 90.000 tonn af vír verði send á markað á ári hverju. Vírarnir verða notaðir í háspennustrengi í líkingu við strengina sem flytja raforku frá Kárahnjúkavirkjun að álverinu.
meira
26. febrúar 2008
80 milljónir í styrki til fjölbreyttra verkefna árið 2007
Alcoa Fjarðaál og samfélagssjóður Alcoa veittu samtals yfir 80 milljónir króna í styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Austur- og Norðurlandi árið 2007. Styrkirnir eru veittir félagasamtökum og stofnunum til fjölbreyttra verkefna sem ætlað er að auðga og efla sjálfbært samfélag. Frá árinu 2003 hefur Alcoa styrkt slík verkefni um ríflega 270 milljónir króna samtals.
meira
30. janúar 2008
Vinnuslys í álveri Alcoa Fjarðaáls
Um miðjan janúar hlaut starfsmaður í álveri Alcoa Fjarðaáls rafstraum við vinnu sína í kerskála álversins.
meira
29. janúar 2008
Framlag til þekkingar
Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. hefur fengið 10 milljón króna styrk frá Alcoa Foundation til að undirbúa meistaranám á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar.
meira
29. janúar 2008
Alcoa enn á ný á lista yfir 100 sjálfbærustu fyrirtæki heims
Alcoa var nýlega tilnefnt eitt af sjálfbærustu fyrirtækjum heims á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss.
meira
25. janúar 2008
Búið að gangsetja 200 ker
Seint í gær var tvöhundraðasta kerið gangsett í álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Búist er við að gangsetningu ljúki um mánaðamótin mars/apríl, en samtals eru 336 ker í tveimur kerskálum álversins.
meira
23. janúar 2008
Alcoa vill auka verulega endurvinnslu áldósa í Bandaríkjunum - Biðlar til annarra álfyrirtækja um samstarf.
Alcoa hefur greint frá því að fyrirtækið hafi sett sér það markmið að 75% drykkjarumbúða úr áli verði endurunnar í Bandaríkjunum árið 2015. Nú fer um helmingur slíkra umbúða til endurvinnslu þar í landi.
meira
18. janúar 2008
Alcoa tekur virkan þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum
Alcoa, sem á álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði og vinnur að hagkvæmniathugun á nýju álveri á Bakka við Húsavík, er meðal fyrstu fyrirtækja til að skuldbinda sig til að veita upplýsingar í nýja skrá um losun gróðurhúsalofttegunda.
meira
12. janúar 2008
Alcoa ofarlega á lista um siðferði
Alcoa er í fimmta sæti á árlegum lista um siðferði alþjóðlegra fyrirtækja sem birtur var í byrjun janúar.
meira
11. janúar 2008
Methagnaður hjá Alcoa
Hagnaður Alcoa, sem á Alcoa Fjarðaál í Reyðarfirði, var 2,6 milljarðar bandaríkjadala á árinu 2007, eða sem nemur ríflega 160 milljörðum íslenskra króna.
meira
|
 |
 |