alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

24. október 2008
Alcoa Fjarðaál hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs 2008

Í dag afhenti Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa Fjarðaáls, viðurkenningu Jafnréttisráðs 2008 en hana hlýtur fyrirtækið m.a. fyrir góðan árangur í því að vinna gegn kynbundnu starfsvali og kynjaskiptingu vinnumarkaðar.

Stefna Alcoa Fjarðaáls um að ráða að jöfnu konur og karla til starfa í fyrirtækinu hefur verið áberandi frá upphafi starfsemi þess. Þeirri stefnu var framfylgt með markvissum atvinnuauglýsingum og kynningarfundum sem konum var boðið sérstaklega til, en þeir voru haldnir í öllum byggðakjörnum á Austurlandi, auk þess sem almennir íbúafundir voru haldnir til að kynna ráðningarstefnu fyrirtækisins. Árangur þessarar stefnu er að 28% allra starfsmanna Alcoa Fjarðaáls eru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. Þetta er besti árangur sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur til að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða.

Alcoa Fjarðaál vinnur eftir nýrri jafnréttisáætlun sem tekur mið af nýsamþykktum jafnréttislögum nr. 10/2008. Með henni fylgir metnaðarfull framkvæmdaáætlun sem leggur áherslu á áframhaldandi jöfnun kynjahlutfalls starfsmanna á öllum sviðum, áætlun um að tryggja launajafnrétti og samræmingu atvinnu- og fjölskyldulífs. Athygli vekja áætlanir um að hvetja og styrkja konur til iðnmenntunar og áhersla á að bæði kynin noti rétt sinn til fæðingarorlofs og veikindadaga barna. Þá tekur Alcoa Fjarðaál árlega þátt í launakönnun Intellecta, sem nær til þeirra starfsmanna sem semja sjálfir um laun sín og hafa konur verið hækkaðar í launum í kjölfar þessara kannana.

Jafnréttisráð telur árangur Alcoa Fjarðaáls í því að vinna gegn kynbundnu starfsvali og kynjaskiptingu vinnumarkaðar til fyrirmyndar, en alkunna er að á Íslandi hefur reynst erfitt að brjóta upp hefðbundið náms- og starfsval kynjanna. Kynskipting vinnumarkaðar á þátt í að viðhalda kynbundnum launamun og því hafa aðgerðir sem eru til þess fallnar að draga úr henni jákvæð áhrif á launamun kynja. Þessi árangur Alcoa Fjarðaáls er ekki síst mikilvægur í ljósi þess að kannanir benda til að launamunur kynja sé meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.

Jafnréttisráð hefur veitt viðurkenningar árlega frá árinu 1992. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Aðeins einu sinni áður hefur viðurkenningin fallið í skaut aðila á landsbyggðinni, en fyrstu viðurkenningu ráðsins hlaut Akureyrarbær.

Viðurkenningargripur ársins 2008 er postulínsstytta eftir Guðrúnu Indriðadóttur myndlistarmann sem ber heitið Snúum bökum saman.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


28% af starfsfólkinu konur


Þær eru hressar, konurnar hjá Alcoa Fjarðaáli.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina