


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
3. október 2008
Ál flutt út fyrir 100 milljarða
Flutt hefur verið út ál fyrir meira en 100 milljarða króna á árinu, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.
Viðskiptablaðið greindi frá nýjum tölum frá Hagstofu Íslands í gær sem sýna að útflutningsverðmæti áls það sem af er árinu er komið yfir 100 milljarðar króna. Fram kemur að ál sé þýðingarmesta útflutningsvara Íslands með 39% hlut en sjávarafurðir komi næst á eftir með 37%. Í ágúst var flutt út ál fyrir 15,4 milljarða króna sem er 90% aukning frá sama mánuði í fyrra, samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins.
|
 |


|