Alcoa á Íslandi
Fréttir - 2008 

  

Prentvæn útgáfa
go

20. ágúst 2008
Hundruð gesta hafa heimsótt álverið í sumar

Alcoa Fjarðaál hefur boðið gestum í heimsókn í álverið á laugardögum í sumar til að kynna sér starfsemi fyrirtækisins. Mikill fjöldi gesta hefur nýtt tækifærið og síðastliðinn laugardag, komu til dæmis yfir hundrað manns í heimsókn.

Auk þess að bjóða einstaklingum í heimsókn á laugardögum tekur fyrirtækið á móti fjölda fólks í skipulögðum hópum á öðrum tímum. Jafnt íslenskir sem erlendir ferðamenn og áhugasamir heimamenn, hafa nýtt sér tækifærið til að kynnast einu nútímalegasta álveri heims. Sem dæmi má nefna að í sumar hefur verið tekið á móti fjörutíu manna gönguklúbbi af Seltjarnarnesinu sem var í gönguferð um Austurland, eldri borgurum frá Vestmannaeyjum, 100 manns úr húsbílaklúbbnum Flökkurunum, Samtökum verslunar og þjónustu á Akureyri, hópi erlendra verkfræðinga sem starfað hafa við Kárahnjúka, breska sendiherranum og fylgdarliði, grænlenskum þingmönnum og ráðherrum, hópi meistaranema frá RES (Renewable Energy Science) Orkuskólanum á Akureyri, og hópi frá færeysku rafveitunum.
 
Heimsóknirnar eru liður í áherslu fyrirtækisins á að miðla upplýsingum um starfsemi sína til almennings. Meðal þess sem starfsmenn fyrirtækisins hafa kynnt fyrir áhugasömum gestum er hvað verður um afurðir fyrirtækisins, áherslu Alcoa á sjálfbærni, umhverfi og öryggi og samfélagsleg áhrif framkvæmdanna á Austurlandi. Boðið hefur verið upp á rútferðir um álverslóðina og farið hefur verið með minni hópa í skoðunarferð um álverið , þegar því hefur verið við komið.
 
Stefnt er að því að bjóða almenningi í heimsóknir á laugardögum út september. Auk þess er starfsfólk ávallt reiðubúið til að taka á móti hópum á öðrum tímum. Upplýsingar um móttöku gesta fást í síma 470 7700.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Hópurinn frá RES Orkuskólanum á Akureyri


Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina