

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
26. ágúst 2008
Snúið aftur í heimahagana
Í Morgunblaðinu í dag birtist skemmtilegt viðtal við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, starfsmann í upplýsinga- og samfélagsteymi. Hún segir meðal annars að í raun hafi tveir klukkutímar bæst við hvern dag hjá sér eftir að hún flutti aftur austur.
Kristborg Bóel Steindórsdóttir starfsmaður í upplýsinga- og samfélagsteymi segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að lífið sé léttara og einfaldara eftir að hún flutti til Reyðarfjarðar. Kristborg er frá Stöðvarfirði og segir að hún kunni vel við nándina á landsbyggðinni. „Það er frábært að vera komin aftur á heimaslóðir, hér er takturinn allt annar en í Reykjavík og það fer ekki óratími í að sækja og skutla börnunum alla daga. Í raun hafa tveir klukkutímar bæst við hvern dag hjá mér í frítíma eftir að ég flutti hingað“ segir hún. Kristborg flutti til Reyðarfjarðar fyrir einu og hálfu ári, þegar hún fékk vinnu hjá Alcoa Fjarðaáli. Hún er grunnskólakennari frá KHÍ og náms- og starfsráðgjafi frá Háskóla Íslands. Tvö barna hennar eru í grunnskóla og það yngsta í leikskóla, en það tekur enga stund að sækja þau og fara íbúðina og versla í matinn. „Hér geta allir labbað í sínar tómstundir og núna hef ég seinnipartinn semfrítíma en, það er eitthvað sem ég varla þekkti þegar ég bjó í bænum.“ Kristborg segist líka finna mun á félagslífinu á Reyðarfirði og því sem hún átti að venjast í Reykjavík. „Hér er fólk virkara. Ég hef aldrei haft svona mikið að gera í félagslífinu. Hér er alltaf eitthvað um að vera, menningarviðburðir, blússandi matarklúbbamenning, skíðasvæðið í Oddsskarði á veturna og fleira. Fólk er duglegra við að búa sér eitthvað til og það hittist meira heldur en ég átti að venjast þegar ég bjó í bænum. Hér er ómetanlegt frjálsræði, bæði fyrir mig og börnin mín.“ Kristborg bætir við að unga fólkið sé mikið að koma til baka á kjarnasvæðið Eskifjörð og Reyðarfjörð og að hún sé ekkert á leiðinni í havaríið í höfuðborginni.
|
 |
|