


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
11. september 2008
Alcoa í sjálfbærnivísitölu Dow Jones, sjöunda árið í röð
Greint var frá því á dögunum að Alcoa sé hluti af sjálfbærnivísitölu Dow Jones, sjöunda árið í röð. Val á fyrirtækjum í vísitöluna er byggt á mati frammistöðu fyrirtækja í umhverfis-, félags- og efnahagsmálum.
Meðal þeirra þátta sem eru metnir við val fyrirtækja má nefna áhættu-stjórnun, vörumerkjaþróun, aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, kröfur til birgja og starfsmannastefnu. Meðal þess sem hæst bar í viðleitni Alcoa til að auka sjálfbærni á árinu 2007 má nefna:
- Gangsetning á fyrsta nýja álveri Alcoa í 20 ár sem knúið er sjálfbærri vatnsaflsorku.
- o Þátttaka í U.S. Climate Action Partnership, bandarískra samtaka fyrirtækja, þekktra umhverfisverndarsamtaka og sjálfstæðra stofnana sem knúið hafa á um lagasetningu í Bandaríkjunum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
- o Alcoa og samfélagssjóður Alcoa hafa fjárfest fyrir meira en 49 milljónir bandaríkjadala í samfélögum þar sem fyrirtækið rekur starfsemi.
Sjálfbærniskýrsla Alcoa fyrir árið 2007 er aðgengileg á slóðinni: www.alcoa.com/sustainability Byrjað var að reikna út sjálfbærnivísitölur Dow Jones árið 1999 og var það í fyrsta skipti sem farið var að meta starfsemi fyrirtækja um víða veröld á mælikvarða sjálfbærni.
|
 |
|