Alcoa á Íslandi
Fréttir - 2008 

  

Prentvæn útgáfa
go

23. júlí 2008
AlcoaTV: Ný vefsíða með lifandi myndefni

Alcoa hefur nýlega sett í loftið vefsíðu sem kallast AlcoaTV en þar er í boði lifandi myndefni í anda hinnar vinsælu vefsíðu YouTube. Á þessari síðu er að finna samansafn af öllu myndbandsefni sem er að finna á einhverri af hinum 85.000 síðum fyrirtækisins.

Á AlcoaTV geta gestir skoðað myndefni um viðskipti Alcoa, sjálfbærniverkefni, sögu fyrirtækisins og samfélagsleg verkefni. Slóðin er http://www.alcoa.com/tv

„Okkur langaði til að vekja athygli á broti af því besta sem er í boði á vefsetri Alcoa," sagði Brad Fisher, vefstjóri Alcoa.com. „Nú er stöðugt fleiri mikilvægum uppgötvunum og nýsköpunarverkefnum miðlað með myndböndum og okkur finnst þetta vera besta aðferðin til að deila því efni með alþjóð."

Meðal efnis sem er að finna á síðunni er hin athyglisverða auglýsing „Alcoa Can't Wait“ (Alcoa getur ekki beðið) en hún fjallar meðal annars um endurvinnslu fyrirtækisins. Af öðru efni má nefna mynd um fyrstu flugferð Airbus A380 risaþotunnar, ásamt efni um framleiðsluvörur fyrirtækisins, t.d. Dura-Bright® álfelgur og Reynobond® álklæðningu með með Kevlar®, og einnig samfélags- og sjálfbærniverkefni víða um heim.


Myndband um áldósir og endurvinnslu


Á einu af þeim myndböndum sem í boði eru á AlcoaTV er fróðleg umfjöllun um áldósir og endurvinnslu þeirra.
skoða myndband

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina