Alcoa á Íslandi
Fréttir - 2008 

  

Prentvæn útgáfa
go

24. júlí 2008
Heimamenn völdu Alcoa

Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, segir í viðtali við Viðskiptablaðið í gær, miðvikudaginn 23. júlí, að ekkert bendi til annars en að álver á Bakka verði að veruleika. Hann segir allflesta Norðlendinga binda miklar vonir við byggingu álvers á Bakka með tilheyrandi virkjunarframkvæmdum á Þeistareykjum og í Gjástykki.

Bergur talar um að verkefnið Sjálfbært samfélag – álver á Bakka, eigi sér langan aðdraganda. Í upphafi hafi heimamenn litið til þess jarðhita sem er að finna í þessum landshluta, einkum við Þeistareyki, og hugmyndin hafi þróast í samfélaginu nyrðra. „Við höfum verið í vörn síðustu ár því hér hefur orðið fólksfækkun og samfélagið hér hefur fengið á sig mörg áföll með kvótaniðurskurði og brotthvarfi ýmissa fyrirtækja og atvinnustarfsemi. Þessar stóru stoðir í samfélaginu hurfu á braut og á einhvern hátt verða menn að bregðast við,” segir Bergur.

Hann segir ennfremur að heimamenn hafi sjálfir valið Alcoa til samstarfs um uppbyggingu orkufreks iðnaðar á svæðinu. „Við vitum að þarna er ábyrgur aðili sem hefur sýnt það í verki,” segir hann og bendir á að Alcoa hafi náð einna lengst í heiminum á sínu sviði. „Við viljum fá þennan hagræna hluta inn í okkar samfélag og veljum til samstarfs ábyrgan samstarfsaðila,” segir hann.

„Við teljum verkefnið jákvætt í alla staði og það hefur ríkt um það mikil sátt og samstaða hér að þetta skuli vera leiðin sem verður farin. Allir stjórnmálaflokkar hafa komið að þessu máli og allir drifið það áfram,” segir Bergur.
 


Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina