

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
20. júní 2008
150 konur í kaffi
Alcoa Fjarðaál bauð konum í bleikt kaffiboð á kvenréttindadaginn 19. júní. Boðið tókst mjög vel og á milli 150 og 160 konur á öllum aldri og af öllu svæðinu kíktu við í kaffi.
Tekið var á móti þeim í matsal fyrirtækisins með fordrykk, sem að sjálfsögðu var bleikur í tilefni dagsins. Boðið var upp á dagskrá sem samastóð af stuttum ræðuhöldum og tónlist. Á mælendaskrá voru tvær konur, amma og sonardóttir. Báðar heita þær Stella, sú eldri Stella Björk Steinþórsdóttir og sú yngri Stella Rún Steinþórsdóttir. Þær deildu með hópnum skoðun sinni á kvenréttindabaráttunni, hvöttu konur til að sækja fram og fara fram á sömu laun og karlarnir! Ragnheiður Jara Rúnarsdóttir söng svo nokkur vel valin lög við undirleik Daníels Arasonar hljómborðsleikara. Starfsfólk Lostætis, sem rekur mötuneyti Alcoa Fjarðaáls sá um veitingar sem runnu ljúflega niður, enda með eindæmum ljúffengar. Flestar konurnar enduðu svo heimsóknina með rútuferð um svæðið þar sem tvær kjarnakonur úr fyrirtækinu deildu vitneskju sinni um starfsemina. Dagurinn var allur hinn ánægjulegasti og er ætlunin að halda uppá daginn árlega.
|
 |
|