alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

6. maí 2008
Alcoa sjóðurinn styrkir íslenska nútímalist í New York

Samfélagssjóður Alcoa er ásamt íslenskum yfirvöldum aðalstyrktaraðili yfirlitssýningar Listasafns Íslands á íslenskri nútímalist, sem var opnuð þann 1. maí  í Scandinavia House í New York.

Sýningin er einn  af þeim viðburðum sem íslensk stjórnvöld standa fyrir í borginni í tengslum við kosningabaráttu Íslands fyrir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Auk þess sem Samfélagssjóður Alcoa er einn helsti bakhjarl sýningarinnar styrkir sjóðurinn einnig útgáfu á fræðsluefni sem tengist sýningunni og sérstökum dagskrám á sýningartímabilinu sem ætlað er að auka skilning gesta á menningu Íslands, verkum sýningarinnar og höfundum þeirra.
 
Á sýningunni eru verk 21 listamanns  Þetta eru höggmyndir, innsetningar, málverk, ljósmyndir og myndbönd. Að sögn forsvarsmanna Listasafns Íslands endurspeglar sýningin afar vel sérstöðu íslenskra listamanna sem birtist í þeim áhrifum sem Ísland hefur á viðfangsefni þeirra, þrátt fyrir að margir, sem eiga verk á sýningunni, búi og starfi í New York og hafi jafnvel sótt menntun sína þangað. Halldór Björn Runólfsson, forstöðumaður Listasafns Íslands, segir t.a.m. að munurinn komi m.a. fram í viðhorfi þeirra til náttúrunnar og hún sé raunar grunnþema viðfangsefna íslenskra listamanna, óháð því hversu áberandi það sé hverju
sinni. Hann opnaði sýninguna í gær að viðstöddu fjölmenni.  Þrír listamannanna sem voru viðstaddir sögðu  sýningargestum frá verkum sínum og hugmyndunum sem liggja að baki þeim. 
 
Á sýningunni í Scandinavia House í New York eiga verk þau Þórdís Aðalsteinsdóttir, Olga Bergmann, Hildur Bjarnadóttir, Margrét H. Blöndal, Ólafur Elíasson, Steingrímur Eyfjörð, Gabríela Friðriksdóttir, Hulda Hákon, Sigrún Hrólfsdóttir, Jóní Jónsdóttir, Eirún Sigurðardóttir, Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ragnar Kjartansson, Ólöf Nordal, Jón Óskar, Eggert Pétursson, Katrín Sigurðardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Magnús Sigurðarson og Hulda Stefánsdóttir.
 
Um Samfélagssjóð Alcoa
 
Samfélagssjóður Alcoa Corporation var stofnaður 1952 og er sjálfstæð stofnun með aðsetur í Bandaríkjunum. Sjóðurinn styrkir fjölda góðra málefna um allan heim og námu styrkveitingar 2007 rúmlega þremur milljörðum króna. Styrkir Alcoa hér á landi nema um 270  milljónum króna frá árinu 2003  Á síðasta ári  námu styrkveitingar á Íslandi um 80 millj. króna.
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina