alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

4. desember 2007
Samfélagssjóður Alcoa styrkir endurbætur hins sögufræga Sómastaðahúss við Reyðarfjörð

Alcoa veitti Þjóðminjasafni Íslands í dag styrk úr samfélagssjóði sínum til endurbóta og uppbyggingar Sómastaðahússins.  Styrkurinn nemur um 16 milljónum króna og verður hann veittur til verkefnisins á næstu þremur árum.

Sómastaðir við Reyðarfjörð, sem útvegsbóndinn Hans Jakob Beck byggði ári 1875, er eitt merkilegasta hús landsins, en þetta er eina portbyggða steinhúsið sem varðveist hefur á Íslandi. Sómastaðir komust í vörslu Þjóðminjasafns Íslands árið 1988.
 
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, tók við styrknum úr hendi Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra Alcoa Fjarðaáls.  Meðal viðstaddra voru Ásta Beck, dóttir húsbyggjandans Hans Jakobs Becks, en hún fæddist og ólst upp að Sómastöðum, og Þór Jakobsson, veðurfræðingur og formaður félags niðja Richards Long, en Richard Long var afi Hans Jakobs Becks.
 
„Sómastaðir eru næsti nágranni álvers Alcoa Fjarðaáls og það kviknaði snemma áhugi á því hjá fyrirtækinu að taka þátt í að varðveita þetta merkilega hús.  Þegar framkvæmdir stóðu sem hæst var reynt að styrkja húsið svo það yrði ekki fyrir skemmdum og nú þegar byggingu álversins er að ljúka er ánægjulegt að geta tekið þátt í því með Þjóðminjasafninu að endurbyggja þetta fallega steinhús,” sagði Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Aloca Fjarðaáls, við þetta tækifæri.
 
Samfélagssjóður Alcoa er sjálfstætt starfandi sjóður með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, en hann er ekki rekinn í hagnaðarskyni.  Sjóðurinn hefur verið starfræktur í rúmlega hálfa öld og styrkir hafa runnið til fjölda góðra mála um allan heim.  Á síðasta ári námu styrkveitingar úr samfélagssjóði Alcoa rúmlega 1.6 milljörðum króna.
 

„Sómastaðahúsið er mikilvægur hluti húsasafns Þjóðminjasafns íslands, og eitt fárra steinhlaðinna húsa sem varðveist hafa,” sagði Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður.  „Húsasafn Þjóðminjasafnsins varð til er safnið tók gömul hús í vörslu sína eitt af öðru, þegar það var eina leiðin til að bjarga þeim frá eyðileggingu eða niðurrifi. Smátt og smátt myndaðist heilt safn húsa og er fjöldi þeirra nú kominn á fimmta tug. Safnið veitir ágæta innsýn í húsakost þjóðarinnar á seinni öldum og þróun húsagerðar á Íslandi. Húsasafnið er kjarni safnkosts Þjóðminjasafns Íslands á landsbyggðinni. Safnið stendur í samstarfi við Húsafriðunarnefnd ríkisins að viðgerðum og viðhaldi á húsunum og rannsakar þau sem og gamla byggingararfinn almennt.  Styrkurinn sem við veittum móttöku í dag er mikilvægur okkar starfi og mun nýtast vel til uppbyggingar Sómastaða.”
 
Útvegsbóndinn Hans Jakob Beck byggði steinhúsið að Sómastöðum árið 1875 eins og áður segir, en hann hlóð það úr grjóti í nágrenninu og batt með jökulleir.  Grunnflötur hússins er um 37 fermetrar, undir því er kjallari og nýtanlegt pláss er í risi.  Hans Jakob var tvíkvæntur 23 barna faðir og því má segja að plássið hafi verið vel nýtt.
 
Hafist var handa við viðgerðir á Sómastöðum árið 1991, en framkvæmdir hafa legið niðri um nokkurt skeið.  Styrkurinn, sem veittur er úr samfélagssjóði Alcoa, verður nýttur til þess að vinna tímabærar endurbætur á húsinu og færa það nærri upprunalegu horfi. 
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Sómastaðir


Gamli tíminn mætir nýja tímanum: Sómastaðahúsið og álver Alcoa Fjarðaáls.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina