alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

24. ágúst 2007
Alcoa Fjarðaál meðal stofnaðila Myndlistasafns Tryggva Ólafssonar

Formleg stofnun Myndlistarsafns Tryggva Ólafssonar, Neskaupstað, sjálfeignarstofnun, fór fram í dag, föstudaginn 24. ágúst, í Gallerí Fold að Rauðarárstíg 14 í Reykjavík.

Markmið með stofnun safnsins er aðallega að eiga og safna myndverkum eftir Tryggva Ólafsson, myndlistarmann, varðveita myndverkin og halda á þeim sýningar fyrir almenning í húsnæði safnsins í Neskaupstað og annarsstaðar þar sem henta þykir. Sömuleiðis eiga myndverkin að nýtast til rannsókna, fræðslu og skemmtunar. Safninu er heimilt að lána og/eða leigja út myndverk í eigu eða umsjón safnsins með það að markmiði að almenningur fái notið þeirra. Markmiðum með stofnun safnsins skal náð með beinum fjárframlögum, myndgjöfum og styrkjum svo sem nánar greinir í skipulagsskrá safnsins.
 
Stofnfé safnsins er 210 myndverk eftir Tryggva Ólafsson og fé sem stofnaðilar legga til.
 
Tryggvi Ólafsson er meðal þekktustu og virtustu myndlistarmanna þjóðarinnar. Fjölmörg myndverk eftir hann eru í eigu listasafna, fyrirtækja, félaga, stofnana og einstaklinga, innlendra sem erlendra. Tryggvi er fæddur í Neskaupstað árið 1940 en hefur verið búsettur í Danmörku síðustu áratugi.
 
Undir skipulagsskrá safnsins rituðu stofnaðilar sjálfseignarstofnunarinnar en þeir eru:
Tryggvi Ólafsson, Magni Kristjánsson, sveitarfélagið Fjarðabyggð, Alcoa Fjarðaál, Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað, Sparisjóður Norðfjarðar og Landsbanki Íslands.
 
Stjórn safnsins skipa þeir Magni Kristjánsson, framkvæmdastjóri, Neskaupstað, Freysteinn Bjarnason, framkvæmdastjóri, Neskaupstað og Jón Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, Reykjavík. Varamaður í stjórn er Smári Geirsson, kennari, Neskaupstað.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Frá undirritun samnings


Á myndinni sést Ruth Elfarsdóttir, fjármálastjóri Alcoa Fjarðaáls undirrita samninginn. Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð er lengst til hægri.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina