alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

3. nóvember 2006
Vont veður beit ekki á sjálfboðaliðana

Starfsmenn Alcoa Fjarðaáls héldu áfram að láta gott af sér leiða um síðastliðna helgi en þá tóku hátt í 50 manns á Eskifirði og 11 manns á Egilsstöðum þátt í sjálfboðavinnu í tengslum við samfélagsátakið Leggjum hönd á plóg.

Starfsmenn Alcoa á Eskifirði fjölmenntu að húsnæði Hestamannafélagsins Freyju og reistu þar nýja 150 metra langa hestagirðingu. Janne Sigurdsson var meðal þeirra sem tóku þátt í verkefninu en hún lét slæmt veður ekkert á sig fá. „Við byrjuðum á því að taka niður gömlu girðinguna áður en við gátum hafist handa við að reisa þá nýju. Sú gamla var orðin ansi illa farin og því þurftum við að skipta út nokkrum girðingastaurum í leiðinni með gröfu sem við fengum lánaða hjá Bræðrunum Bragason,” segir Janne.

„Það má nú segja að það hafi verið hreint og beint skítaveður á meðan á vinnunni stóð en samt skemmtu sér samt allir mjög vel. Þegar girðingin var komin upp fengu krakkarnir útreiðatúr að launum og að lokum var kökuveisla handa dugnaðarforkunum,” segir Janne og bætir við að þetta hafi verið mjög góður dagur þar sem allir hafi unnið vel saman.

Starfsmenn á Egilsstöðum voru ekki síður duglegir en þar gengu 11 manns um göturnar með kort og merktu inn á svæði þar sem vantaði gangbrautir eða öryggisatriðum var ábótavant. „Við ákváðum að vinna þetta út frá grunnskólunum, enda þótti okkur mikilvægt að skoða það svæði sem mest þyrfti á því að halda,” segir Elfa Sigurðardóttir starfsmaður Alcoa Fjarðaáls. „Mæting var mjög góð og þegar verkefninu lauk var haldin pitsuveisla fyrir starfsmennina og fjölskyldur þeirra.”
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Unnið í leðjunni


Starfsmenn Alcoa Fjarðaáls, börn og makar, létu veðrið og drulluna ekkert á sig fá og reistu myndarlega girðinu.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fór á hestbak


Tenna, dóttir Janne Sigurðsson, teymir merina Drottningu með Völu, dóttur Ormarrs Örlygssonar, á bakinu.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina