

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
16. júní 2005
Alcoa Fjarðaál og UÍA stofna ungmenna- og íþróttasjóðinn Sprett
Nýr styrktarsjóður, Sprettur, verður stofnaður í dag, fimmtudaginn 16. júní, við undirritun samstarfssamnings milli Ungmenna og íþróttasambands Austurlands (UÍA) og Alcoa Fjarðaáls með það að markmiði að efla ungmenna- og íþróttastarf á Austurlandi. UÍA og Alcoa Fjarðaál hafa með samningnum skuldbundið sig til að leggja fjármagn til sjóðsins næstu þrjú árin.
Markmið sjóðsins er að efla æskulýðs- og íþróttastarf á Austurlandi. Úthlutun úr sjóðnum verður þrískipt:
- 50% sjóðsins verður notað til að styðja íþróttamenn Austanlands sem sækja þurfa keppni út fyrir fjórðunginn eða erlendis til frekari afreka. Styrkir verða veittir einstaklingum, félögum eða flokkum einstakra félaga sem vegna árangurs síns hafa kost á að sækja viðurkennd mót utan Austurlands.
- 25% verður varið til eflingar mótahalds og uppbyggingu æskulýðs- og íþróttaviðburða á Austurlandi. Styrkir verða veittir þeim sem standa fyrir einstökum mótum í æskulýðs- eða íþróttastarfi.
- 25% fer í að styðja útbreiðslu einstakra íþróttagreina eða æskulýðsstarfs, meðal annars með námskeiðahaldi eða með ráðningu reynslumikilla þjálfara eða leiðtoga. Styrkir verða veittir til félaga eða einstaklinga sem hafa það að leiðarljósi að efla æskulýðs- og íþróttastarf á Austurlandi.
Úthlutað verður úr sjóðnum þrisvar á ári og mun UÍA annast úthlutunina. Nánari upplýsingar um sjóðinn, úthlutunartíma og umsóknareyðublað má finna á www.uia.is. Stofnun sjóðsins var tilkynnt á fundi UÍA, þar sem Viðar Örn Hafsteinsson var útnefndur íþróttamaður UÍA ársins 2004. Þann titil hlýtur sá íþróttamaður á Austurlandi sem þykir hafa skarað mest fram úr í sinni grein það árið. Frekari upplýsingar veita: Arngrímur Viðar Ásgeirsson, Ungmenna og íþróttasambandi Austurlands í síma 861 3677 Erna Indriðadóttir Kynningarstjóri Alcoa Fjarðaáls í síma 843 7709
|
 |
|