Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2005-01-28

Alcoa valið eitt af þremur sjálfbærustu fyrirtækjum heims

Álfyrirtækið Alcoa var í nýliðinni viku útnefnt eitt af þremur sjálfbærustu fyrirtækjum heims á ráðstefnu samtakanna World Economic Forum sem fram fór í Davos í Sviss. Þar var jafnframt kynntur listi yfir 100 sjálfbærustu fyrirtæki heims (Global 100 Most Sustainable Corporations in the World) sem valin hafa verið úr hópi meira en 2.000 stórfyrirtækja um víða veröld.

Í umsögn um Aloca kemur fram að fyrirtækið hafi skipað sér í leiðandi stöðu með viðleitni sinni til að skilgreina og stýra þeirri áhættu sem fyrirtækið standi frammi fyrir að því er varðar sjálfbærni. Fyrirtækinu hafi tekist vel að samræma markmið um arðsemi annars vegar og áherslu á umhverfisvernd, verðmætasköpun og félagslegan stöðugleika hins vegar. Dæmi um þetta séu áætlun Alcoa um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og samskipti fyrirtækisins við hagsmunahópa í tengslum við umdeildar vatnsaflsvirkjanir.
 
Listinn yfir 100 sjálfbærustu fyrirtæki heims er gerður af kanadíska fyrirtækinu Corporate Knights og byggir á aðferðafræði sem rannsóknafyrirtækið Innovest Strategic Value Advisors hefur þróað. Unnið er úr upplýsingum um þúsundir fyrirtækja sem m.a. mynda grunn hlutabréfavísitalna eins og S&P 500, MSCI World, FTSE 350 og Eurostoxx. Stefnt er að því að kynna slíkan lista árlega á ráðstefnu samtakanna World Economic Forum en þau eru skipuð leiðandi einstaklingum á sviði viðskipta, stjórnmála og vísinda frá öllum heimshornum.
 
Alcoa er fremsti framleiðandi heims á súráli, hrááli og unnum álvörum. Fyrirtækið framleiðir málma sem notað er í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa um 120.000 manns í 40 löndum. Dótturfyrirtæki Alcoa á Íslandi nefnist Alcoa Fjarðaál.
 
Frekari upplýsingar um listann yfir 100 sjálfbærustu fyrirtæki heims má nálgast á www.global100.org
 
Frekari upplýsingar um Alcoa má nálgast á  www.alcoa.com
 
Nánari upplýsingar veitir Hrönn Pétursdóttir, kynningarstjóri Alcoa Fjarðaáls, í síma 690 2700.

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina