Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2003-09-05

Um 2300 ársverk skapast á byggingartíma álvers

Samningur um framkvæmdirnar undirritaður

Fulltrúar Fjarðaáls og verktakans Bechtel Group Inc. undirrituðu í dag, föstudaginn 5. september, samning um byggingu álvers á Reyðarfirði. Samkvæmt samningnum mun Bechtel taka að sér að reisa 322.000 tonna álver á Reyðarfirði og er áætlað að verkinu verði lokið árið 2007. Við framkvæmdirnar verður lögð rík áhersla á öryggi starfsmanna, umhverfisvernd og samráð við heimamenn. Einnig verður kappkostað að ljúka framkvæmdum á tilsettum tíma og innan kostnaðaráætlunar. Samstarfsaðili Bechtel á Íslandi er HRV verkfræðisamsteypa sem saman stendur af verkfræðistofunum Hönnun, Rafhönnun og VST.

Undirritun samningsins fór fram í samkomuhúsinu Félagslundi á Reyðarfirði að viðstöddum fulltrúum íslenskra stjórnvalda, fyrirtækja og hagsmunasamtaka. Framkvæmdastjóri frummálmvinnslu hjá Alcoa, Bernt Reitan, undirritaði samninginn fyrir hönd Fjarðaáls en framkvæmdastjóri málmvinnslu hjá Bechtel, Andrew Greig, fyrir hönd Bechtel. Meðal viðstaddra voru Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, Kristinn H. Gunnarsson, formaður iðnaðarnefndar Alþingis, Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, og Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Áætlað er að bygging álversins muni kosta í kringum einn milljarð bandaríkjadollara, jafnvirði um 80 milljarða íslenskra króna. Vinna við hönnun álversins er þegar hafin en gert er ráð fyrir því að byggingarframkvæmdir hefjist seint á árinu 2005. Alls er búist við því að unnin verði í kringum 2.300 ársverk í tengslum við framkvæmdirnar og að starfsmenn verði um 1.500 þegar þeir verða flestir. Stefnt er að því að álverið muni hefja framleiðslu í apríl 2007 og muni skila fullum afköstum síðar sama ár.

Báðir aðilar samningsins leggja mikla áherslu á að öryggi starfsmanna verði tryggt við framkvæmdirnar og að þess verði gætt að lágmarka áhrif þeirra á umhverfi og lífríki. Einnig vilja samningsaðilar að náið samráð verði haft við heimamenn í tengslum við framkvæmdirnar.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.



Staðreyndir um byggingu álvers á Reyðarfirði


meira

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina