Gengið hefur verið frá ráðningu Tómasar Más Sigurðssonar í starf forstjóra Fjarðaáls, sem fyrirhugar að reisa 322.000 tonna álver í Reyðarfirði. Álverið er hluti umfangsmestu fjárfestingar Íslandssögunnar og mun verða eitt fullkomnasta og umhverfisvænasta álver í heimi. Áætlað er að hefja framkvæmdir við byggingu álversins árið 2005 og stefnt er að því að framleiðsla hefjist þar árið 2007.
Tómas Már er 36 ára, verkfræðingur að mennt og gegnir nú starfi framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs hjá Norðuráli. Hann mun taka við starfi forstjóra Fjarðaáls þann 1. mars næstkomandi en mun starfa hjá Norðuráli fram að þeim tíma.
„Bygging Fjarðaáls er mikilvægur liður í stefnu Alcoa um aukin umsvif á sviði álvinnslu. Reynsla Tómasar Más af því að stýra verkefnum hjá Norðuráli – í tengslum við byggingu og stækkun álvers fyrirtækisins, umhverfismat, og samninga um kaup á orku og hráefnum – mun án efa nýtast honum í starfi forstjóra Fjarðaáls. Að auki mun reynsla hans af samskiptum við heimamenn á starfssvæði Norðuráls koma sér vel í nýja starfinu. Við erum mjög ánægð með að Tómas Már skuli reiðubúinn að taka að sér að leiða vinnu okkar við að byggja upp eitt skilvirkasta álver í heimi,“ segir Mike Baltzell, yfirmaður álvinnslusviðs Alcoa.
Tómas Már hefur verið framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs hjá Norðuráli síðan 1997, en verkfræði- og viðhaldsdeildir fyrirtækisins heyra undir það svið auk gæðamála. Einnig hefur hann sinnt margvíslegum verkefnum í tengslum við uppbyggingu fyrirtækisins. Milli áranna 1995 og 1997 starfaði Tómas Már hjá Hönnun hf., aðallega við framkvæmd umhverfismats og skipulagningu framkvæmda. Þar áður var hann verkfræðingur hjá Vegagerðinni.
Tómas Már lauk BS-prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í skipulagsverkfræði frá Cornell háskóla í Ithaca í Bandaríkjunum árið 1995. Samhliða störfum sínum hjá Hönnun hf. og Norðuráli hefur Tómas Már stundað kennslu við verkfræðideild H.Í. og Viðskiptaháskólann á Bifröst. Kona hans er Ólöf Nordal lögfræðingur og eiga þau þrjú börn sem eru 7, 10 og 12 ára.
Alls sóttu 90 manns af báðum kynjum um starf forstjóra Fjarðaáls og voru að mati Alcoa margir mjög hæfir umsækjendur í þeim hópi. Mannafl annaðist ráðningarferlið fyrir hönd Alcoa og mun einnig sjá um ráðningu í starf starfsmanna- og kynningarstjóra fyrirtækisins.