Viðurkenningin sem hér um ræðir var fyrst veitt af forsætisráðherra Ástralíu árið 1999 og er kennd við það embætti. Verðlaunin voru að þessu sinni afhent við hátíðlega athöfn í Sydney í nýliðinni viku.
Greening Australia eru samtök sem starfa einkum að ráðgjöf á sviði umhverfismála og hafa alls 300 starfsmenn á 80 stöðum í Ástralíu. Samtökin voru stofnuð árið 1982 sem var alþjóðlegt ár trésins. Samstarf Alcoa og Greening Australia hófst fyrir meira en tveimur áratugum en á þessu ári eru 40 ár síðan Alcoa hóf starfsemi í Ástralíu.