 |
 |
 |
 |
 |
 |
2004-04-23

Hrönn Pétursdóttir ráðin starfsmanna- og kynningarstjóri Fjarðaáls

Gengið hefur verið frá ráðningu Hrannar Pétursdóttur í stöðu starfsmanna- og kynningarstjóra Fjarðaáls, sem fyrirhugar að reisa 322.000 tonna álver í Reyðarfirði. Hrönn er 37 ára og hefur að undanförnu starfað sem sjálfstæður stjórnunarráðgjafi, m.a. stýrði hún nýlega undirbúningsvinnu í tengslum við stofnun nýs framhaldsskóla á Snæfellsnesi. Áður starfaði Hrönn sem stjórnandi og ráðgjafi hjá IMG, stærsta ráðgjafar- og rannsóknafyrirtæki landsins. Hún mun starfa og verða búsett í Fjarðabyggð. Hrönn lauk BA-gráðu í boðskiptafræði frá Duquesne háskóla í Pittsburg í Bandaríkjunum árið 1990 og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2002 með áherslu á stefnumiðaða árangursstjórnun. Hún var framkvæmdastjóri Menntar – samstarfsvettvangs atvinnulífs og skóla, 1999-2000, og framkvæmdastjóri samtakanna European Youth Forum, sem eru samstarfsvettvangur hagsmunasamtaka um málefni ungs fólk í Evrópu, 1997-1999. Milli áranna 1993 og 1997 gegndi Hrönn starfi fræðslu- og verkefnastjóra á Evrópusvæði Alþjóðasamtaka skáta, þar sem hún stýrði þróunar- og þjálfunarverkefnum sem náðu til alls 42 landa. Þar áður var Hrönn rekstrar- og starfsmannastjóri hjá Íslenska útvarpsfélaginu. Hrönn hefur einnig verið stundakennari við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og leiðbeinandi hjá Endurmenntunarstofnun H.Í. og IMG. Hún sat í stjórn menntahóps Gæðastjórnunarfélagsins 1999-2000, í stjórn Æskulýðsdeildar Evrópuráðsins 1995-1997, Framkvæmdastjórn Æskulýðsmiðstöðvar Evrópuráðsins í Búdapest 1995-1997, og í stjórn Bandalags íslenskra skáta 1999-2004. Álver Fjarðaáls, sem er hluti umfangsmestu fjárfestingar Íslandssögunnar, mun verða eitt fullkomnasta og umhverfisvænasta álver í heimi. Áætlað er að hefja framkvæmdir við byggingu álversins árið 2005 og stefnt er að því að framleiðsla hefjist þar árið 2007.

|  |


Hrönn Pétursdóttir

|
|