Iðnaðarráðuneytið stóð fyrir fundunum, en þar var kynnt sú vinna sem fram hefur farið á þremur stöðum á Norðurlandi til að kanna staðsetningu hugsanlegs álvers. Staðirnir eru Brimnes í Skagafirði, Dysnes í Eyjafirði og Bakki á Húsavík. Fyrsti fundurinn var haldinn í Ketilshúsi á Akureyri þann 31. janúar, en hann sóttu um 200 manns. Annar fundurinn var haldinn á Fosshóteli Húsavík 1. febrúar og þangað kom hátt á fjórða hundrað manns, en sá síðasti var haldinn á í félagsheimilinu Ljósheimum, Skagafirði, þann 2. febrúar og um hundrað manns mættu á fundinn.
Tilgangur fundanna var að kynna niðurstöður samanburðarskýrslu sem var unnin á vegum samráðsnefndar um staðarval fyrir álver á Norðurlandi. Í nefndinni sitja fulltrúar Fjárfestingarstofunnar, Akureyrarbæjar, Húsavíkurbæjar, sveitarfélagsins Skagafjarðar, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Alcoa. Á öllum fundunum voru líflegar umræður og fundargestir lögðu spurningar af ýmsum toga fyrir nefndarmenn og Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra. Ákvörðun Alcoa um hvar álverinu verður valinn staður, ef af byggingu þess verður, verður tilkynnt í byrjun mars.