Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-11-25

Nýtt starfsfólk hjá Alcoa Fjarðaáli

Guðný Björg Hauksdóttir hefur verði ráðin til að annast skrifstofu fyrirtækisins á Reyðarfirði og sinna fjölbreyttum verkefnum tengdum undirbúningi að starfsemi fyrirtækisins.  Guðný er með BA í stjórnmála- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands.  Hún starfaði hjá Hönnun og ráðgjöf á Reyðarfirði frá 1996 við skrifstofuhald, bókhald og ýmis sérverkefni. Frá árinu 2000 starfaði hún hjá Hönnun hf. við ráðgjafastörf og gerð samfélagslegra úttekta vegna mats á umhverfisáhrifum og frá árinu 2003 við upplýsinga- og kynningarmál hjá sama fyrirtæki.  Guðný er búsett á Reyðarfirði, gift Gunnlaugi Sverrissyni viðskiptafræðingi og eiga þau 2 syni. Hún mun hefja störf hjá Alcoa Fjarðaáli þann 1. janúar 2005.

Steinþór Þórðarson hefur verði ráðinn til að stýra starfsmannafræðslu Alcoa Fjarðaáls.  Steinþór er  með BA í sálarfræði og hefur kennsluréttindi frá Háskóla Íslands, auk þess sem hann stundar nú framhaldsnám í kennslufræðum samhliða starfi. Steinþór kemur úr starfi fræðslustjóra hjá Kennslumiðstöð Háskóla Íslands, en meðal fyrri starfa er verkefnastjórnun hjá Skref fyrir skref, fræðslu- og framkvæmdastjórnun starfsmannaþjónustu Baugs hf, kennsla á bæði framhaldsskóla- og fullorðinsstigi og ritstjórn Vikublaðsins Austurland.  Steinþór á tvær dætur og mun fyrst í stað verða búsettur í Neskaupstað.  Hann mun hefja störf hjá Alcoa Fjarðaáli 17. janúar 2005.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.






Smelltu á myndina til þess að stækka hana.




Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina