Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2003-10-14

Alcoa fær verðlaun fyrir öryggismál

DÓTTURFYRIRTÆKI Alcoa í Ástralíu var nýlega valið í hóp þeirra tíu ástralskra stórfyrirtækja sem þykja hafa staðið sig best í því að axla samfélagslega ábyrgð. Fyrirtækið RepuTex útnefnir á hverju ári áströlsk stórfyrirtæki sem þykja hafa skarað fram úr á þessu sviði. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum; fyrir stjórnun, umhverfisstefnu, stefnu í málefnum nærsamfélaga og fyrir starfsmannastefnu.

Námafyrirtæki í eigu Alcoa í Ástralíu var einnig nýlega veitt verðlaun fyrir árangur á sviði heilsuverndar og öryggismála, svokölluð MINEX-verðlaun. Þau eru veitt árlega af samtökum námafyrirtækja þar í landi.
 
Að mati RepuTex hefur Alcoa í Ástralíu staðið sig best allra þarlendra stórfyrirtækja í því að rækta gott samband við nærsamfélög. Fyrirtækið vermir sjötta sætið þegar heildarniðurstaða í öllum fjórum flokkum er reiknuð út en alls nær úttekt RepuTex til 100 ástralskra stórfyrirtækja, að því er fram kemur í tilkynningu frá Alcoa.
 
Wade Hughes, upplýsingastjóri umhverfis-, heilsuverndar- og öryggismála hjá Alcoa, sem starfað hefur mikið að undirbúningi álvers Alcoa í Reyðarfirði, segir að viðurkenningarnar skipti fyrirtækið miklu máli. "Það er það sem við gerum, ekki það sem við segjum, sem skiptir máli. RepuTex og Minex hjálpa okkur að skilja hvernig starfsemi okkar er vegin og metin af fólki sem stendur utan fyrirtækisins. Við lítum svo á að viðurkenningarnar séu til marks um að við erum að stefna í rétta átt," segir Hughes.

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina