alcoa.com

Alcoa á Íslandi
 
2003-06-18

2007 trjáplöntur gróðursettar í Alcoaskóg í Reyðarfirði

Laugardaginn 14. júní s.l., hófst gróðursetning á 2007 trjáplöntum sem Alcoa færði Fjarðabyggð að gjöf, á svæðið frá Framnesi og út að Sómastöðum í Reyðarfirði. Byggingasvæðið þar sem álverksmiðja Fjarðaáls mun rísa er ofan við Sómastaði. Fyrstu plönturnar voru gróðursettar af Trevor J. Adams, framkvæmdastjóra Íslandsverkefnis Alcoa og Ásmundi Ásmundssyni, formanni Skógræktarfélags Reyðarfjarðar að viðstöddum heimamönnum og gestum.

Þegar samningurinn um byggingu álvers á Reyðarfirði var undirritaður milli íslenskra stjórnvalda og Alcoa 15. mars sl. tilkynnti Alain Belda, forstjóri Alcoa, að fyrirtækið myndi færa Skógræktarfélagi Reyðarfjarðar 2007 trjáplöntur sem tákn um að verksmiðjan tæki til starfa árið 2007. Belda bætti við að Alcoa myndi auk þess færa félaginu 450 trjáplöntur á ári fram til 2007 sem tákn um fjölda fastra starfa við verksmiðjuna í framtíðinni. Svæðið sem plantað verður á er nú kallað Alcoaskógur af heimamönnum.

Að þessu verkefni stóðu nemendur 8. og 9. bekkjar í Grunnskóla Reyðarfjarðar auk foreldra. Verkið var hannað og því stýrt af starfsmönnum Sólskóga ehf. Einnig sáu félagar í skógræktarfélaginu um undirbúning og framkvæmd gróðursetningarinnar. Trjátegundir sem urðu fyrir valinu að þessu sinni eru ilmbjörk, reyniviður, ígulrós, koparreynir og alpareynir.

"Íbúar á Reyðarfirði eru afskaplega ánægðir með þetta framlag Alcoa til skógræktar hér hjá okkur. Þetta sýnir að Alcoa hefur ásett sér að verða virkur þátttakandi í samfélagsmálum Fjarðabyggðar. Tjárplöntunin var strembin en óskaplega skemmtileg fyrir alla sem tóku þátt í henni" sagði Ásmundur Ásmundsson, formaður Skógræktarfélags Reyðarfjarðar.

Alcoa hefur nú plantað einni milljón trjáa frá árinu 1998 við 350 verksmiðjur sínar víða um heim. Alain Belda plantaði milljónasta trénu nýverið í heimalandi sínu Brasilíu. Trén 2007 eru því viðbót við þennan fjölda og hluti af átaki álfyrirtæksins sem nefnist Milljón tré.

Skógræktarfélag Reyðarfjarðar var stofnað 1985 og var tilgangur þess að standa við og efla skógrækt á Reyðarfirði. Félagið hefur beitt sér í samvinnu við sveitarfélagið að útplöntun á bakkaplöntum á hverju sumri. Búið er að gróðursetja um 400.000 plöntur á þeim tíma og hefur mest verið gróðursett af birki og lerki, en einnig hefur verið plantað út furu, greni og elri, til að auka fjölbreytni flórunnar. Nú síðustu sumur hefur gróðursetningu verið stjórnað af mönnum frá skógræktarfélaginu en unglingar í unglingavinnu á vegum Fjarðabyggðar hafa unnið að gróðursetningu, auk þess sem félagsmenn hafa gróðursett og borið á áburð. Í sumar er ráðgert að setja niður um 12000 plöntur.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.



Þessi mynd er frá gróðursetningu fyrstu trjánna í Alcoaskógi í Reyðarfirði. Með skólakrökkunum á myndinni eru Ásmundur Ásmundsson, formaður Skógræktarfélags Reyðarfjarðar og Trevor J. Adams, framkvæmdastjóri Íslandsverkefnis Alcoa.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina