 |
 |
 |
 |
 |
 |
2005-10-25

Alcoa Fjarðaál semur við IMG Mannafl-Liðsauka um að fyrirtækið sjái um allar ráðningar í álverið á Reyðarfirði

Alcoa, Fjarðaál og IMG Mannafl-Liðsauki hafa samið um að fyrirtækið sjái um allar ráðningar fyrir Alcoa Fjarðaál. Þetta er einn stærsti samningur um ráðningar sem gerður hefur verið við eitt fyrirtæki hér á landi. Um 400 manns munu starfa í álveri fyrirtækisins þegar reksturinn verður kominn í fullan gang í lok ársins 2007.

Miðað við fyrirliggjandi gögn er búist við að um helmingur starfsmanna komi frá Austurlandi, en hinn helmingurinn komi annars staðar að af landinu. Búist er við að ráða í öll störf hér á landi. Alcoa Fjarðaál hefur þegar ráðið um tvo tugi starfsmanna til að undirbúa gangsetningu álversins sem verður í apríl árið 2007 og fleiri eiga eftir að bætast við á þessu ári. Nálægt 250 manns verða ráðnir á næsta ári og árið 2007 verða ráðnir um 130 til viðbótar. Störfin verða afar fjölbreytt. Háskólamenntað fólk verður ráðið í um 15% starfanna, iðnmenntaðir einstaklingar í 21% þeirra, en langstærstur hluti starfsmanna eða um 62% verður fólk með almenna menntun. Störfin verða sveigjanleg og áhersla verður lögð á ábyrgð, valddreifingu, starfsþróun og teymisvinnu í álverinu. IMG Mannafl-Liðsauki er ein stærsta ráðningarstofa landsins og rekur skrifstofu bæði í Reykjavík og á Akureyri. Vegna verkefnisins mun þriðja skrifstofan verða opnuð í Fjarðabyggð innan skamms. Umsækjendur um öll störf hjá Alcoa Fjarðaáli munu fara í gegnum umfangsmikið staðlað ráðningarferli og mun meginhluti þeirrar vinnu vera unnin af IMG Mannafli-Liðsauka. Alcoa Fjarðaál mun ráðast í viðamikla þjálfun starfsmanna áður en álverið tekur til starfa og einnig verður þjálfun og fræðsla órjúfanlegur hluti starfseminnar í framtíðinni. Þekking verður sótt til annarra álvera Alcoa, einkum í Kanada og Bandaríkjunum; bæði verður starfsfólk sent utan til þjálfunar og einnig kemur hingað reynt fólk sem mun veita tímabundna aðstoð við gangsetningu verksmiðjunnar og þjálfun starfsmanna. Kostnaður við þjálfunina er áætlaður tæplega 4,2 milljónir bandaríkjadollara eða hátt á þriðja hundrað milljónir íslenskra króna. Samkvæmt skoðanakönnun sem IMG Gallup vann fyrir Fjarðaál frá 21. september til 5. október sl., telja 2,1% landsmanna á aldrinum 16–75 ára líklegt að þeir muni sækjast eftir vinnu hjá Alcoa Fjarðaáli. Það vekur athygli að nær tvöfalt fleiri úr Reykjavíkurkjördæmi telja líklegt að þeir muni sækja um störf í álverinu, en í könnun sem var gerð fyrir hálfu ári síðan. Á Austurlandi sögðu rúmlega 12% að þeim þætti líklegt að þeir myndu sækjast eftir vinnu hjá Alcoa. Í skoðanakönnuninni kemur einnig fram að 49% þeirra sem voru spurðir í úrtakinu hafa mjög jákvætt eða frekar jákvætt viðhorf til þess að búa á Mið-Austurlandi. Tæplega 62% landsmanna eru mjög eða frekar hlynntir byggingu álvers við Reyðarfjörð og liðlega 70% telja Alcoa Fjarðaál traust eða frekar traust fyrirtæki.

|  |
|
|